Fréttir
Sigur í Gettu enn betur
Lið Akurskóla fór með sigur af hólmi í spurningakeppni grunnskólanna í Reykjanesbæ, Gettu enn betur. Liðið var skipað þeim Andra Fannari Ævarssyni, Hlyni Snæ Vilhjálmssyni og Loga Sigurðssyni. Liðstjórar og varamenn voru Olga Nanna Corvetto og Samúel Giovanni Luppi. Frábær árangur og óskum við liðinu til hamingju....
Lesa meiraStarfsdagur 13. mars
Mánudaginn 13. mars er starfsdagur í Akurskóla. Þennan dag eiga nemendur frí og frístundaskóli er lokaður. Starfsmenn vinna að undirbúningi þennan dag....
Lesa meiraÞorgrímur Þráins í heimsókn á miðstiginu
Þorgrímur Þráinsson kom í Akurskóla fimmtudaginn 2.mars og hélt fyrirlestur fyrir nemendur í 5.-7.bekk. Fyrirlesturinn nefndist STERK LIÐSHEILD  hvað getum við lært af landsliðinu í Frakklandi? Hann sýndi myndir og myndbönd af því sem gerðist á bak við tjöldin í Frakklandi og útskýrði hvers vegna landsliðið í knattspyrnu náði svo góðum árangri....
Lesa meiraLokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram mánudaginn 6. mars í Berginu í Hljómahöll. Hátíðin var öll hin glæsilegasta og átti Akurskóli tvo afar góða fulltrúa sem stóðu sig afar vel þær Sara Antonía Magneudóttir og Þórhildur Ernar Arnardóttir. Við óskum þeim báðum innilega til hamingju með góðan árangur. Myndir frá keppninni má sjá í myndasaf...
Lesa meiraFulltrúa Akurskóla í Stóru upplestrarkeppninni
Í vetur hafa nemendur í 7. bekk verið að æfa sig í framsögn og upplestri sem er liður í Stóru upplestrarkeppninni. Í febrúar tóku þeir þátt í bekkjarkeppnum þar sem 8 fulltrúar voru valdir til að keppa í skólakeppninni um að verða fulltrúar Akurskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin í Berginu 6. mars. Í skólakeppninni s...
Lesa meiraSkertur dagur á morgun
Góðan dag foreldrar/ forráðamenn, Á morgun, öskudag, er skertur dagur. Börnin mæta á sama tíma og venjulega, klukkan 08:10 í heimastofur. Áætlað er að 6.-10. bekkur fái mat klukkan 10:30 og 1.-5. bekkur klukkan 11:10. Skóla er slitið eftir mat. Frístund er opið fyrir þau börn sem eru skráð þar. Við hvetjum alla til að mæta í búning :-)...
Lesa meiraSkertur dagur
Föstudaginn 17. febrúar er skertur nemendadagur í Akurskóla. Þennan dag verður kennsla til 10:30 hjá nemendum í 1. til 4. bekk og 10:50 hjá nemendum í 5. - 10. bekk. Þeir nemendur sem eru í áskrift hjá Skólamat geta fengið sér að borða áður en þeir halda heim á leið. Frístundaskólinn Akurskjól er opinn fyrir þá nemendur sem eru skráðir þar....
Lesa meiraDagur leikskólans
Í dag þann 6. febrúar er dagur leikskólans. Leikskólabörn frá leikskólanum Holti héldu af stað í ljósagöngu, öll búin ljósum, frá leikskólanum að Akurskóla og tóku lagið fyrir okkur. Markmið ljósagöngunnar er að varpa ljósi á eitthvað málefni sem tengist leikskólum og í ár var áherslan lögð á allt það góða starf sem unnið er í leikskólum landsins. ...
Lesa meiraVertu næs fyrirlestur
Í dag kom fulltrúi frá Rauða kross Íslands og hélt fyrirlestur fyrir 6.-10. bekk. Fyrirlesturinn ber heitið Vertu næs og gengur út á jafningjafræðslu þar sem lögð er áhersla á að hafa ekki fordóma gagnvart öðrum. Við hvetjum alla til þess að tileinka sér þetta mikilvæga málefni og munum að vera næs! Myndir eru komnar í myndasafn....
Lesa meiraDagur leikskólans
Í dag þann 6. febrúar er dagur leikskólans. Leikskólabörn frá leikskólanum Holti héldu af stað í ljósagöngu, öll búin ljósum, frá leikskólanum að Akurskóla og tóku lagið fyrir okkur. Markmið ljósagöngunnar er að varpa ljósi á eitthvað málefni sem tengist leikskólum og í ár var áherslan lögð á allt það góða starf sem unnið er í leikskólum landsins. ...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.