Fréttir
Samtalsdagur
Við minnum á samtalsdaginn sem er á morgun, miðvikudaginn 18.janúar. Engin kennsla er þennan dag en frístundarskólinn er opinn frá 8:10-16:00 fyrir þau börn sem búið er að skrá hjá starfsmönnum frístundarskólans....
Lesa meiraNiðurstöður úr Skólapúlsinum
Akurskóli hefur nú fengið niðurstöður úr tveimur mælingum í Skólapúlsinum. Nemendur hafa komið í október og desember í tölvuverið og svarað könnuninni. Niðurstaða hvers þáttar er annað hvort meðaltal mæligilda á bilinu 0 til 10 eða hlutfall svarenda sem velja tiltekna svarmöguleika. Niðurstaða skólans á hverjum matsþætti er borin saman við sama...
Lesa meiraStarfsdagur 11. janúar
Á morgun, miðvikudaginn 11. janúar, er starfsdagur í Akurskóla. Að gefnu tilefni er engin kennsla og frístundarskólinn er lokaður....
Lesa meiraSkólastarf hefst að nýju
Ágætu nemendur og foreldrar/forráðamenn Starfsmenn Akurskóla óskar ykkur gleðilegs árs og þakkar samstarfið á liðnu ári. Við minnum á að skólastarf hefst á nýju ári á morgun, þriðjudaginn 3. janúar. Við byrjum af fullum krafti og kennsla er samkvæmt stundaskrá....
Lesa meiraJólafrí og upphaf skólastarfs í janúar
Á morgun, miðvikudaginn 21. desember, hefst jólafrí í Akurskóla. Nemendur mæta aftur í skólann samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 3. janúar. Starfsfólk Akurskóla sendir nemendum og aðstandendum þeirra hugheilar jólakveðjur og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða. Við hlökkum til að hitta alla á nýju ári....
Lesa meiraJólahátíð Akurskóla
Jólahátíð Akurskóla var haldin í dag í íþróttasalnum. Hátíðin gekk vel í alla staði og nemendur voru til fyrirmyndar. Nemendur í 5. bekk sýndu helgileik, stúlkur í 7. og 8. bekk sýndu dans og síðan spilaði Skúli undir á meðan allir nemendur dönsuðu í kringum jólatréð. Myndir komnar í myndasafn....
Lesa meiraHátíðarmáltíð
Í gær, fimmtudaginn 15 desember, fór fram hátíðarmáltíð í Akurskóla. Atburðurinn er stór í aðventunni hér í Akurskóla en nemendur og starfsfólk mæta ævinlega prúðbúin og starfsmenn þjóna nemendum til borðs. Í boði var hangikjöt, kartöflur, uppstúf og annað meðlæti og í eftirrétt var ís. Nemendur komu í þremur hollum í matinn, 1.-3. bekkur komu fyrs...
Lesa meiraAðventan í Akurskóla
Mikið hefur verið um að vera í Akurskóla á aðventunni. Á mánudaginn kom leikhópurinn Stopphópurinn og sýndi jólaleikritið Sigga og skessan í jólaskapi í íþróttahúsinu fyrir 1.-4. bekk. Leikritið fjallar um að það eru að koma jól og allir að komast í sannkallað jólaskap. Skessan er heima í hellinum með Siggu að skreyta þegar þær frétta að verðrið...
Lesa meiraRöskun á skólastarfi miðvikudaginn 30. nóvember
Líkt og fram hefur komið í fréttum munu grunnskólakennarar ganga úr störfum sínum miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 12:30. Þennan dag hefst frístundarskólinn Akurskjól kl. 12:30 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. Allir aðrir nemendur í 1. – 10. bekk fara heim klukkan 12:30. Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með fréttum. Ef samningar...
Lesa meiraHeimsókn frá Brunavörnum Suðurnesja
Í dag kom fulltrúi frá Brunavörnum Suðurnesja og fulltrúi frá Lions hreyfingunni í Njarðvík. Þeir hittu nemendur í 3 bekk á sal skólans. Nemendur fengu fræðslu um eldvarnir og í lok fræðslunnar fengu þeir gjafir. Nemendurnir stóðu sig mjög vel og ætlar hver nemandi að huga að eldvörnum heima hjá sér og standa góða vakt yfir jólin. Við hvetjum forel...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.