Fréttir
Myndir frá öskudegi
Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur á miðvikudaginn. Krakkar í 1-5 bekk fengu að vera frjáls og velja sér stöðvar þar sem ýmislegt skemmtilegt var í boði. Menntastríð var milli nemenda í 6-10 bekk en þá er krökkunum skipt niður í hópa og þau keppast sín á milli við að leysa ýmsar þrautir. Myndir frá þessum skemmtilega degi eru komnar inn í myndas...
Lesa meiraÖskudagur
Á morgun, miðvikudaginn 10. febrúar, er öskudagur. Við hvetjum alla krakka að koma í búning og taka þátt í gleðinni með okkur.Öskudagurinn er skertur dagur svo krakkarnir fara þegar dagskrá lýkur, um klukkan 10:30 fyrir 6. -10. bekk og klukkan 11:10 fyrir 1. -5. bekk. Frístundaskólinn Akurskjól er opinn þennan dag fyrir þau börn sem þar eru skráð...
Lesa meiraDagur leikskólans
Í dag var haldið upp á dag leikskólans sem er á morgun þann 6.febrúar. Leikskólabörn frá leikskólanum Holti komu fyrir utan Akurskóla klukkan 9 í morgun og tóku lagið fyrir okkur og héldu af stað í ljósagöngu frá skólanum að leikskólanum. Markmið ljósagöngunnar er að varpa ljósi á eitthvað málefni sem tengist leikskólum og í ár var áherslan lögð á ...
Lesa meiraÞorraþema
Vikuna 25.-29.janúar var haldið þorraþema hjá fyrsta bekk í Akurskóla sem fer fram í samstarfi við leikskólana Akur og Holt. Markmið vikunnar er að fræða börn um gamla tíma, siði og venjur. Börnunum var skipt í hópa og fengu mismunandi verkefni og fræðslu á hverjum degi. Verkefnin sem voru í boði voru mjög fjölbreytt og skemmtileg, til dæmis var þæ...
Lesa meiraZumba í Akurskóla
Gaman er að segja frá því að sl. fimmtudag hófst zumbakennsla í Akurskóla og er þetta í fyrsta skipti sem boðið er upp á zumbakennslu í skólanum. Zumba er valgrein í 8-10. bekk. Zumba er líkams- og heilsurækt þar sem dansað er við suður-ameríska tónlist. Fyrsti tíminn lofaði góðu og eru margir efnilegir zumbadansarar í Akurskóla. Zumbakennari er ...
Lesa meiraSamtalsdagur
Næstkomandi miðvikudag, þann 20. janúar er samtalsdagur. Þá fara fram foreldraviðtöl. Enginn kennsla verður en frístundarskólinn Akurskjól verður opinn frá 08:10 – 16:00 fyrir þau börn sem hafa sótt um það....
Lesa meiraFræðsluátak
Nú er skólinn byrjaður og þá hefst starf foreldrafélagsins einnig Okkur í bauðst að sýna foreldrum upptöku frá fyrirlestri Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur um sexting, hrelliklám og netið. Margir hafa kallað eftir vitundarvakningu til að stemma stigu við nektarmyndum af íslenskum börnum sem ganga manna á milli á netinu. Myndirnar eru í sumum tilvikum a...
Lesa meiraStarfsdagur
Þriðjudaginn nk. þann 12. janúar verður starfsdagur í Akurskóla. Þá fellur niður öll kennsla. Frístundarskólinn Akurskjól verður einnig lokaður þennan dag....
Lesa meiraJólakveðja
Starfsfólk Akurskóla óskar nemendum sínum og foreldrum þeirra gleðilegra hátíðar. Eigið ánægjulegt jólafrí. Skólinn hefst aftur mánudaginn 4. janúar samkvæmt stundarskrá. Hægt er að skoða myndir af litlu jólunum á heimasíðu skólans. Jólakveðja...
Lesa meiraHátíðarmatur
Í dag var jólaleg stund hjá okkur í skólanum í dag. Hátíðarmaturinn var borinn fram, hangikjöt með kartöflum, hvítri sósu, eplasalati og tilheyrandi og í eftirrétt var ísblóm. Starfsmenn þjónuðu nemendum meðan jólalög hljómuðu í salnum. Þetta var mjög skemmtilegur dagur. Hægt er að skoða myndir í myndasafni....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.