Fréttir
Akurskóli opinn í dag
Akurskóli er opinn í dag og starf verður með þeim nemendum sem koma í skólann. Foreldrum er í sjálfsvald sett hvort þeir senda nemendur í skólann....
Lesa meiraAfhending Grænfána
Akurskóli veitti Grænfána viðtöku við hátíðlega athöfn í Narfakotsseylu í dag. Akurskóli hefur verið ,,Skóli á grænni grein“ síðan haustið 2009 og fékk í dag alþjóðlega viðurkenningu og flaggar nú Grænfána í fyrsta sinn. Viðurkenningin er veitt fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess a...
Lesa meira1. bekkur fékk gjöf.
Á dögunum barst okkur í 1. bekk vegleg gjöf, en þá kom Sölvi í Hvolpum færandi hendi ásamt móður sinni með fullt box af gamalli smámynt svo sem túköllum, fimmtíuaurum, fimmtíuköllum, flotkrónum o.fl. Þetta sómir þetta sér vel í smáhlutasafninu okkar og kemur til með að nýtast vel stærðfræði-kennslu. Myntin kemur frá afa hans Sölva og viljum við...
Lesa meiraBrúum bilið á Þorranum
Akurskóli og leikskólarnir Holt og Akur eru að vinna sitt árlega þemaverkefni um Þorrann. Í verkefninu taka þátt rúmlega níutíu börn á aldrinum fimm til sjö ára auk starfsfólks. Nemendum er skipt í sex hópa sem fara á milli skóla og vinna ólík verkefni, en öll tengjast þau annað hvort Þorranum eða gamla tímanum á einhvern hátt. Dæmi um verkefn...
Lesa meiraGuðmundur Stefán Gunnarsson
Víkurfréttir hafa útnefnt Guðmund Stefán Gunnarsson þjálfara hjá Júdódeild UMFN sem mann ársins á Suðurnesjum árið 2011. Guðmundur Stefán, sem er aðeins 35 ára, íþróttakennari og stúdent frá Kvennaskólanum og Njarðvíkingur, hefur unnið ákaflega óeigingjarnt starf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Suðurnesjum frá stofnun júdódeildar UMFN snemma á árin...
Lesa meiraHelga Lind ræddi við nemendur og starfsfólk um rafrænt einelti
Helga Lind Pálsdóttir félagsráðgjafi heimsótti Akurskóla í gær og fræddi nemendur 6. – 10. bekkjar og starfsfólk skólans um áhrif rafræns eineltis. Helga kynnti helstu niðurstöður nýrrar rannsóknar sinnar á rafrænu einelti. Rannsókninni var ætlað að varpa ljósi á hugarheim unglinga varðandi rafrænt einelti og leitast var við að fá fram og skoð...
Lesa meiraSkólabragur, agamál, einelti.
Kynning á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum Þriðjudaginn 17. janúar nk. munu Suðurnesjavaktin, FFGÍR (Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ) og fræðsluskrifstofur á Suðurnesjum standa fyrir kynningu á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. Guðni Olgeirsson sérfræði...
Lesa meiraHvað getum við gert til að bæta námsárangur?
Stjórn Foreldrafélagsins og stjórnendur Akurskóla boða til fundar með foreldrum/forráðamönnum nemenda í Akurskóla. Fundurinn verður í Akurskóla þriðjudaginn 10. janúar kl. 20:00. Skólastjórnendur hafa fundað með kennurum og elstu nemendunum um hvernig bæta megi námsárangur nemenda í Akurskóla. Okkur finnst brýnt að halda fund með ykkur, ræða þess...
Lesa meiraBókargjöf
Alex Evan og Aron Ragnar nemendur í Akurskóla mættu með móður sinni, Kristbjörgu og ömmu sinni, Evu Becker og gáfu Akurskóla 50 enskar sögubækur. Þetta er kærkomin gjöf og bækurnar koma sér vel í enskukennslunni. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir....
Lesa meiraJólakveðja
Starfsmenn Akurskóla óska nemendum og foreldrum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Skólastarf hefst aftur miðvikudaginn 4. janúar 2012 samkvæmt stundaskrá....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.












