Fréttir
Ævar Þór rithöfundur í heimsókn
Ævar Þór Benediktsson rithöfundur kom í heimsókn í Akurskóla í dag, miðvikudaginn 14. september og las fyrir nemendur í 5.- 7. bekk úr bókinni Skólaslit og afhenti skólanum nokkur eintök af bókinni. Bókin Skólaslit kemur út frá verkefni sem Ævar Þór vann að með nemendum og kennurum úr Reykjanesbæ í október á síðasta ári. Á hverjum degi samdi hann...
Lesa meiraÓlympíuhlaup ÍSÍ
Í gær tóku allir nemendur Akurskóla þátt í hinu árlega Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Akurskóli hefur verið með frá upphafi og er þetta skemmtileg hefð sem margir setja sér markmið fyrir. Nemendur hlupu hring sem er 2.5 km og voru langflestir sem hlupu 2 hringi eða fleiri. Veðrið var frábært og nemendur voru duglegir að taka þátt. Markmiðið er að stuðla að au...
Lesa meiraSetning Ljósanætur í Akurskóla
Fimmtudaginn 1. september var Ljósanótt sett við Akurskóla eins og við alla aðra grunnskóla bæjarins. Mikil stemming var við setninguna en Sif úr 2.bekk, Jóhann Haukur úr 6.bekk, og Freyja Sif í 9. bekk flögguðu Akurskólafánanum, Reykjanesbæjarfánanum og Ljósanæturfánanum. Nemendur sameinuðust svo og sungu Ljósanæturlag Ásmundar Valgeirssonar. Neme...
Lesa meiraKennslukynningar í Akurskóla
Í næstu og þarnæstu viku verða kennslukynningar fyrir foreldra í Akurskóla. Meðal þess sem verður farið í er námsmat og námskrár í Mentor, kennslufyrirkomulag á hverju stigi ásamt ýmsu öðru sem tengist hverju stigi svo sem skipulag frímínútna, fjölval, skólaferðalög og uppbyggingarstefnuna. Við hvetjum foreldra til að mæta og miðað er við að hver f...
Lesa meiraUpphaf skólastarfs og breytingar á tímasetningum
Nú styttist í að skólastarf hefjist í Akurskóla. Fyrsti dagurinn er 23. ágúst. Þessi dagur verður skóladagur hjá nemendum í 2. – 10. bekk og notum við hann fyrir hópefli og til að undirbúa starfið fram undan með nemendum. Umsjónarkennarar taka á móti nemendum þennan dag og verða með hópinn sinn til 13:20. Frístund hefst kl. 13.20 þennan dag fyrir n...
Lesa meiraSumarfrí og lokun skrifstofu
Ágætu foreldrar/forráðamenn og nemendur Akurskóla Við erum komin í sumarfrí og skrifstofan er lokuð til mánudagsins 8. ágúst. Hægt er að skrá nemendur í skólann í gegnum Mitt Reykjanes og ef erindið er brýnt þá er hægt að senda tölvupóst á netfangið akurskoli@akurskoli.is Hafið það gott í sumar og við sjáumst hress og kát í haust....
Lesa meiraSjálfsmatsskýrsla 2021-2022 er komin út
Sjálfsmatsskýrsla Akurskóla fyrir skólaárið 2021-2022 er komin út. Þar er gerð grein fyrir mati á öllum þáttum skólastarfsins á liðnu skólaári. Hægt er að kynna sér skýrsluna hér....
Lesa meiraSkólaslit og útskrift 10. bekkar vor 2022
Skólaslit Akurskóla fóru fram miðvikudaginn 8. júní og fimmtudaginn 9. júní. Nemendur í 10. bekk voru útskrifaðir 8. júní við hátíðlega athöfn. Nemendur og aðstandendur þeirra mættu í íþróttahúsið þar sem Jón Garðar Arnarsson spilaði á píanó í upphafi athafnar. Sigurbjörg Róbertsdóttir skólastjóri flutti ávarp, Hermann Borgar Jakobsson og Margrét N...
Lesa meiraVorhátíð Akurskóla
Árleg vorhátíð Akurskóla var haldin í dag. Hver árgangur er í fyrirfram ákveðnum lit og var því litagleðin allsráðandi í skólanum í dag. Nemendur byrjuðu daginn á skrúðgöngu í kring um skólann með lögreglufylgd. Því næst kepptu árgangar sín á milli í ýmsum þrautum. Samkeppnin varð hörð en að lokum voru það 4. bekkur og 7. bekkur sem kláruðu sitt al...
Lesa meiraSkotboltakeppni milli 10. bekkjar og starfsfólks Akurskóla
Hefð hefur verið fyrir því að hafa skotboltakeppni milli útskriftarnema og starfsfólks Akurskóla í lok hvers skólaárs. Í dag var þessi keppni og var hún æsispennandi. Leit út fyrir á tímabili að starfsfólkið næði að landa sigrnum en þá tóku nemendur áhlaup og kláruðu leikinn. Það voru því útskriftarnemar sem enduðu sem sigurvegarar í ár. Var mikill...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.











