Fréttir
Skertur kennsludagur – Baráttudagur gegn einelti
Mánudaginn 8. nóvember er skertur nemendadagur í Akurskóla. Þennan dag mæta nemendur í 1. – 6. bekk kl. 8:10 í skólann og nemendur í 7. – 10. bekk kl. 8:30. Eftir stund með umsjónarkennurum fara nemendur í sömu hópa og á þemadögunum þar sem unnið verður að jákvæðum samskiptum og gegn einelti. Kennslu lýkur kl. 10:40 þennan dag og nemendur sem ekki ...
Lesa meiraVetrarfí 18. og 19. október
Mánudaginn 18. október og þriðjudaginn 19. október er vetrarfrí í skólanum. Við hvetjum fjölskyldur til að nýta dagana saman og njóta. Kennsla hefst miðvikudaginn 20. október samkvæmt stundaskrá. ---------------------- Monday 18th and Tuesday 19th of October we have a winter break. Both school and frístund will be closed....
Lesa meiraVel heppnuðum þemadögum lokið
Í dag lauk þemadögum hjá okkur í Akurskóla. Þemað í ár byggði á hrollvekjum, draugum og uppvakningum. Nemendur unnu í blönduðum aldurshópum alls konar verkefni. Í dag heimsóttu svo foreldrar skólans og skoðuðu afraksturinn. Takk fyrir komuna. Fleiri myndir í myndasafninu....
Lesa meiraÞemadagar – bleikur dagur – frjálst nesti
Síðustu daga hafa verið þemadagar í Akurskóla. Nemendur hafa unnið í anda SKÓLASLITA, hrollvekju eftir Ævar Þór. Á morgun, föstudaginn 15. október lýkur þemadögunum á skertum degi. Kennslu lýkur kl. 10:40. Nemendur hafa skreytt skólann hátt og lágt og bjóðum við foreldrum að koma og kíkja á afraksturinn á milli kl. 10:00 og 10:30. Endilega heimsæki...
Lesa meiraÞemadagar
Dagana 13. - 15. október eru þemadagar í Akurskóla. Þemað í ár er í anda hrollvekjunnar SKÓLASLIT eftir Ævar sem flestir nemendur eru að lesa og hlusta á. SKÓLASLIT er spennandi og hrollvekjandi lestrarupplifun fyrir áhugasama og forvitna krakka og líka alla hina sem vilja vera með. Lestrarupplifunin er í boði Reykjanesbæjar og er hugafóstur kennsl...
Lesa meiraTáknmyndir fyrir gildi Akurskóla
Eins og við höfum sagt frá áður þá unnu nemendur og starfsmenn skólans ný gildi fyrir skólann í vor og haust. Við fengum Hildi Hlín Jónsdóttur hönnuð og móður barns í skólanum til að hanna fyrir okkur táknmyndir fyrir hvert gildi. Við erum afar ánægð með útkomuna og kynnum táknmyndir fyrir ný gildi Akurskóla....
Lesa meiraNýtt listaverk - Thorkelli-stofa
Í mars 2004 þegar fræðsluráð Reykjanesbæjar ákvað að nafn nýs grunnskóla í Innri-Njarðvík skildi vera Akurskóli var ákveðið á sama tíma að upplýsinga- og bókasafn skólans skildi heita Thorkelli-stofa. Nafnið er til heiðurs Jóni Þorkelssyni Thorchillius Skálholtsrektor sem er fæddur í Innri-Njarðvík og bókagjöf hans til barna í Njarðvíkursókn á sínu...
Lesa meiraSkólaslit í október - lestrarupplifun
Í október munu nemendur á mið- og unglingastigi taka þátt í lestrarupplifun sem Ævar vísindamaður stýrir. Verkefnið fékk styrk úr Sprotasjóði til þess að efla áhuga drengja á lestri. Verkefnið hefur þróast inn á nýjar brautir í lestrarupplifun með áherslu á skapandi og verklega vinnu ásamt því að áhugasvið og hugmyndir nemenda fái að njóta sín á fj...
Lesa meiraÓlympíuhlaup ÍSÍ
Miðvikudaginn 15. september fór fram Ólympíuhlaup ÍSÍ í Akurskóla í frábæru veðri. Nemendur lögðu sig alla fram og skemmtu sér vel. Nemendur Akurskóla hlupu samtals 1974 km sem er frábær árangur. Keppt er um gullskóinn á milli árganga en sá árgangur sem hleypur lengst á hverju aldursstigi fær hann. Verðlaunaafhending fyrir hlaupið verður að loknu G...
Lesa meiraLeikhópurinn Lotta í heimsókn
Í dag kom Leikhópurinn Lotta í heimsókn á vegum List fyrir alla. Sýnt var leikritið Litla gula hænan. Nemendur í 1.-4. bekk mættu á sal og fengu að njóta sýningarinnar. Allir skemmtu sér vel og lifðu sig vel inní leikritið. Leikhópurinn tók sérstaklega fram hversu frábærir áhorfendur nemendur okkar væru og hrósaði þeim mikið....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.












