Fréttir

Hvaðan ertu?
2. febrúar 2022
Hvaðan ertu?

Í dag fengu nemendur í 7. – 10. bekk fyrirlestur frá þeim Chanel Björk og Miriam Petru. Fyrirlestur þeirra var gagnvirkur og skemmtilegur og mátti sjá að þær vöktu nemendur til umhugsunar. Nemendur voru almennt ánægðir með þær stöllur. Þær fjölluðu um fjölmenningu, fordóma og rasisma. Umsjónarkennarar taka nú við boltanum og halda umræðunni áfram n...

Lesa meira
Starfsdagur 10. janúar
7. janúar 2022
Starfsdagur 10. janúar

Mánudaginn 10. janúar er starfsdagur í Akurskóla. Nemendur eiga frí þennan dag. Frístundaheimilið Akurskjól er lokað þennan dag. ---------- 10th of January is a teachers work day in Akurskóli. All students have a vacation this day. The after school program, Akurskjól, is closed on this day....

Lesa meira
Upphaf skólastarfs eftir jólaleyfi
2. janúar 2022
Upphaf skólastarfs eftir jólaleyfi

Gleðilegt nýtt ár.  Skólastarf hefst þriðjudaginn 4. janúar með starfsdegi. Þennan dag er engin kennsla og frístundaskólinn er lokaður.  Kennsla hefst miðvikudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá. Við minnum á bréf frá bæjarstjóra og fræðslustjóra og biðjum fjölskyldur að fara varlega, senda ekki börn með einkenni í skólann og fara í sýnatöku við mi...

Lesa meira
Jólakveðja
17. desember 2021
Jólakveðja

Nú þegar árið 2021 er að líða undir lok lítum við til baka og rifjum upp jarðhræringar, eldgos, bólusetningar og þær takmarkanir sem Covid-19 hefur sett okkur á árinu með sóttkví, smitgát og skimunum. Við höfum samt verið ótrúlega heppin árið 2021 og fá smit komið upp í skólanum. Fyrir það getum við verið þakklát. Árið hefur líka verið gott á marga...

Lesa meira
Jólahátíð 17. desember og jólafrí
13. desember 2021
Jólahátíð 17. desember og jólafrí

Föstudaginn 17. desember er jólahátíð Akurskóla. Nemendur mæta í heimastofu kl. 10.00 og eiga notalega stund saman. Nemendur mega koma með smákökur eða annað bakkelsi og drykk (ekki orkudrykki). Við hvetjum alla til að koma snyrtilega klædd og að sjálfsögðu í jólaskapi. Nemendur fara heim um kl. 11.00 og eru þá komnir í jólafrí. Frístundaskólinn er...

Lesa meira
Ritunarveggir í Akurskóla
8. desember 2021
Ritunarveggir í Akurskóla

Í Akurskóla er lagt mikið uppúr læsishvetjandi umhverfi í skólastofunni. Eftir að kennarar sáu skemmtilega hugmynd af ritunarvegg hjá Margréti Ýr, kennara í byrjendalæsi í Hafnarfirði, voru nokkrir árgangar sem settu upp sinn ritunarvegg. Ritunarveggirnir nýtast bæði í ritun tengdri gæðatexta en einnig ef nemendur vilja skrifa af eigin frumkvæði. ...

Lesa meira
Starfsdagur 25. nóvember
18. nóvember 2021
Starfsdagur 25. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember er starfsdagur í Akurskóla. Nemendur eiga frí þennan dag. Frístundaheimilið Akurskjól er lokað þennan dag. ---------------------- 25th of November is a teachers work day in Akurskóli. All students have a vacation this day. The after school program, Akurskjól, is closed on this day....

Lesa meira
Nýjar reglur – skipulag frá 15. nóvember
12. nóvember 2021
Nýjar reglur – skipulag frá 15. nóvember

Frá mánudeginum 15. nóvember er grunnskólastarfið með eftirfarandi hætti. Tilhögun skólastarfsins getur verið ólíkt milli skóla þar sem aðstæður eru mismunandi. Í grunninn byggist skipulagið á eftirfarandi þáttum: Í grunnskólum gilda almennar reglur um 50 manna fjöldatakmörk Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni,...

Lesa meira
Smávægilegar breytingar á skóladagatali Akurskóla
5. nóvember 2021
Smávægilegar breytingar á skóladagatali Akurskóla

Ein af megináherslum skólaársins í Akurskóla er að efla stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinendur í starfi. Ellefu stuðningsfulltrúar í Akurskóla taka þátt í námskeiði á vegum Menntamiðjunar þetta skólaárið. Námið fer fram í sex lotum og í þremur þeirra er farið fram á að helsti samstarfsaðili stuðningsfulltrúanna sitji einnig námskeiðið. Þegar s...

Lesa meira
Starfsáætlun Akurskóla 2021-2022
5. nóvember 2021
Starfsáætlun Akurskóla 2021-2022

Starfsáætlun Akurskóla fyrir skólaárið 2021-2022 var samþykkt af skólaráði 12. október 2021 og í fræðsluráði Reykjanesbæjar 4. nóvember 2021.Samkvæmt 29 gr. grunnskólalaga ber hverjum grunnskóla að gefa út skólanámskrá og starfsáætlun. Skólastjóri er ábyrgur fyrir gerð þeirra og skal semja þær í samráði við kennara. Skólanámskrá er nánari útfærsla ...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla