Fréttir
Vetrarfrí
Föstudaginn 21. október og mánudaginn 24. október er vetrarfrí í skólanum. Þá daga er engin kennsla og frístundaskólinn lokaður. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. október. Hafið það sem allra best í fríinu....
Lesa meiraGagnlegar umræður um eineltismál
Í gærkvöldi stóð FFA fyrir vel heppnuðum fundi um einelti. Á fundinum kynnti Lovísa námsráðgjafi eineltisáætlun skólans og Þorlákur Helgason fór yfir helstu birtingarmyndir eineltis og hlutverk foreldra. Framsögumenn svöruðu fyrirspurnum og góðar umræður urðu um skólastarf og viðbrögð gegn einelti....
Lesa meiraVinnudagur í Narfakotsseylu
Laugardaginn 15. október mættu tveir hópar foreldra með börnin sín til þess að vinna að áframhaldandi uppbyggingu útikennslusvæðisins í Narfakotsseylu. Verkefni dagsins var að búa til saltfiskplan og uppsetning á dráttarspili, gleði og vinnusemi ríkti í hópunum. Næsti fjölskyldudagur í Narfakotsseylu verður laugardaginn 29. október....
Lesa meiraStöðvum einelti - afhending styrks
UMFN og Landsbankinn hafa í sameiningu ákveðið að styrkja grunnskólana í Njarðvík í baráttunni gegn einelti. Í gærkvöldi var skólastjórum afhentur 500.000 króna styrkur til þess að verja í vinnu gegn einelti. Öllum nemendum Akurskóla var af þessu tilefni boðið á leik UMFN og Hauka í úrvalsdeildinni í körfuknattleik sem fram fór í gærkvöldi. Fjö...
Lesa meiraFræðslukvöld á vegum FFA og Akurskóla
Þriðjudagskvöldið 18. október kl.20:00 bjóða stjórn FFA og stjórnendur Akurskóla til fræðslukvölds á sal skólans. Kennarar kynna Olweusaráætlun gegn einelti í Akurskóla. Þorlákur Helgason, framkvæmdarstjóri Olweusar á Íslandi, verður með erindi um einelti og foreldrasamfélag. Með von um að foreldrar fjölmenni og taki þátt í mikilvægum umr...
Lesa meira„ég og þú, þú og ég, við tvö saman“
Í næstu viku munum við byrja með námskeiðið skemmtilega „ég og þú, þú og ég, við tvö saman“ fyrir 1-3 bekk. Námskeiðið mun verða haldið miðvikudaginn 19 október í næstu viku og miðvikudaginn 26 október og verður frá 18:30-20:00 í bæði skiptin. Verði verður stillt í hóf en það verður aðeins 300kr fyrir bæði skiptin. Gert er ráð fyrir að allir mæti ...
Lesa meiraVetrarfrí
Föstudaginn 21. október og mánudaginn 24. október er vetrarfrí í skólanum. Þá daga er engin kennsla og frístundaskólinn lokaður. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. október. Hafið það sem allra best í fríinu....
Lesa meiraLeikskólaheimsóknir
Þessa vikuna eru leikskólaheimsóknir. Þá koma börn frá leikskólanum Holti og Akri í stutta heimsókn þar sem þau fá kynningu á skólanum. Stjórnandi sýnir þeim skólann og kynnir þeim starfið sem fram fer. Myndin er af hópi frá Holti í heimsókn hjá Magnúsi myndmenntakennara....
Lesa meiraAkurskóli á iði - lokaganga
Það viðraði vel á göngufólk sl. sunnudag þegar haldið var á svæði vestan Selatanga en það er ýmist kallað Ketill eða Borgir. Þangað er stórbrotið að koma. Hraunmyndanir, hellar, steinbogar og fleira gladdi augað. Grillað var undir lok göngunnar. Þetta var síðasta gangan í þessari hrinu en þráðurinn verður tekinn upp aftur í vor....
Lesa meiraGestkvæmt í Akurskóla
Undanfarna daga hefur verið gestkvæmt hérna hjá okkur í Akurskóla. Þessa viku hafa kennaranemarnir Helga, Ingibjörg og Bára dvalist hjá okkur og fylgst með kennslunni. Í dag fengum við heimsókn frá Grindavíkurskóla en stuðningsfulltrúarnir Rebekka, Guðrún og Margrét ákváðu að nota starfsdaginn sinn í að kynnast starfi stuðningsfulltrúa í Akurskól...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.










