Fréttir
Ákall vegna vinnudags
Á morgun, laugardaginn 12. nóvember verður síðasti vinnudagurinn í haust í Narfakotsseylu. Við þurfum að steypa nokkra drumba niður í jörðina, nú þegar er búið að moka holur fyrir þá. Hugmyndin er að hafa eina vinnulotu þennan síðasta dag. Við ætlum að byrja kl. 10 og gerðum ráð fyrir að klára verkið um hádegi. Er mælst til að þátttakendur taki með...
Lesa meiraElmar spilaði við afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna
Elmar Torsten Sverrisson var fulltrúi nemenda úr Akurskóla á hátíðarsamkomu í Sjálandsskóla í gær þegar forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin. Elmar spilaði tvö lög á harmonikku og tókst flutningurinn mjög vel. Sú hefð hefur skapast í gegnum árin að tengja skemmtiatriðin við þá skóla sem eiga verðlaunahafa hverju sinni....
Lesa meiraTil hamingju Karólína!
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Karólínu myndmenntakennara Íslensku menntaverðlaunin í gærkvöldi. Karólína hlaut verðlaun í flokknum Ungt fólk sem hefur við upphaf kennsluferils síns sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt. Aðrir verðlaunahafar voru Sjálandsskóli, Gunnlaugur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri og námsefnishöfund...
Lesa meiraNemendur tóku utan um Akurskóla!
Í þessari viku leggjum við sérstaka áherslu á samkennd og jákvæð samskipti í Akurskóla. Í gær 8. nóvember myndaðist skemmtileg stemming þegar allir nemendur og starfsmenn fóru út, tóku höndum saman og tóku utan um skólann....
Lesa meiraSíðasta vinnuhelgi í Seylunni.
Okkur bráðvantar vaska menn, konur, karla og hressa krakka í vinnu við Narfakotsseylu. Næsta laugardag þann 12. nóvember verður síðasti vinnudagurinn í haust í Narfakotsseylu. Við þurfum að steypa nokkra drumba niður í jörðina, nú þegar er búið að moka holur fyrir þá. Hugmyndin er að hafa eina vinnulotu þennan síðasta dag. Við ætlum að byrja kl. ...
Lesa meiraKornið, fréttablað Akurskóla
Nýtt tölublað er komið út af Korninu, fréttabréfi Akurskóla. Að þessu sinni er meðal annars sagt frá grenndarnámi, sem er ný smiðja í 4.-5. bekk, Göngum í skólann, Narfakotsseylu auk margra annarra frétta sem allar eiga það sameiginlegt að lýsa fjölbreyttu og skapandi skólastarfi. Foreldrafélag Akurskóla, FFA er með efni um starf þeirra í skólanum....
Lesa meiraFjölskyldudagur í Narfakotsseylu á laugardag.
Við minnum á vinnudaginn í Narfakotsseylu á laugardaginn. Hægt er að velja um tvö tímabil, 10 - 13 eða 13 - 16. Höldum áfram uppbyggingu útikennslusvæðisins. Leiðbeinandi á svæðinu verður Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt....
Lesa meiraGleði og gaman á
Mjög góð þátttaka var á námskeiðinu "Ég og þú, þú og ég, við tvö saman" sem haldið var hér í Akurskóla tvo síðastliðna miðvikudaga. Mömmur, pabbar og börn úr 1. - 3. bekk föndruðu saman og skreyttu og mikil ánægja ríkti á svæðinu. Viðfangsefnin voru kökuskreytingar, krukkumálun, óróar, lengjur, skjaldbökur og spil. Mörg listaverkin litu dagsins ...
Lesa meira"Ég og þú, þú og ég"
Við minnum á seinni hluta námskeiðsins „Ég og þú, þú og ég, við tvö saman“ fyrir 1.-3. bekk, á morgun miðvikudag 26. október kl. 18:30-20:00. Foreldrar verða að mæta með krökkunum því gert er ráð fyrir að þetta námskeið sé til þess að stuðla að meiri samveru foreldra og barna og skapa vettvang til að stofna til nýrra kynna. Allir að mæta svo ...
Lesa meiraLúðrasveit frá Færeyjum
Lúðrasveit frá tónlistarskólanum á eyjunni Vågar í Færeyjum hélt tónleika fyrir nemendur Akurskóla í dag. Hljómsveitarmeðlimir sem eru á aldrinum 11–15 ára koma frá fjórum bæjum eyjarinnar, það er frá Sörvågur, Miðvågur, Vatnsoyrar og Sandarvågur. Innan færeysku lúðrasveitarinnar er einnig sjö manna popphljómsveit sem spilaði nokkur lög. Nemendur...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.
.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)










