Fréttir

Góður árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanna
12. apríl 2013
Góður árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanna

Laufey Soffía Pétursdóttir og Una María Magnúsdóttir náðu góðum árangri í stærðfræðikeppni grunnskólanna sem haldin var í mars. Þær voru báðar í 6. - 10. sæti í keppninni. Til hamingju stúlkur....

Lesa meira
Alþjóðlegt Lionsverkefni
10. apríl 2013
Alþjóðlegt Lionsverkefni

Lionsklúbburinn í Njarðvík kom í skólann í dag og færði öllum 10 ára börnum bókarmerki að gjöf. Lions hreyfingin er í alþjóðlegu verkefni sem stuðlar að auknum lestri og baráttu gegn ólestri í heiminum. Við þökkum Lions kærlega fyrir þessa skemmtilegu bókarmerki....

Lesa meira
Leiklistarval í leikhúsi
10. apríl 2013
Leiklistarval í leikhúsi

Nemendur úr leiklistarvali Akurskóla brugðu undir sig betri fætinum sl. sunnudag og lögðu leið sína í Borgarleikhúsið til að sjá íslensk-dönsku leiksýninguna "Blam" e. Kristján Ingimarsson og Jesper Pedersen. Nemendur nutu sýningarinnar til hins ýtrasta enda einkennist sýningin af einstökum krafti, látbragðsleik, gamanleik, fimleikum, trúðleik, dan...

Lesa meira
Sigga Dögg hittir foreldra og unglinga
9. apríl 2013
Sigga Dögg hittir foreldra og unglinga

SIGGA DÖGG, KYNFRÆÐIGNUR, VERÐUR MEÐ FYRIRLESTUR FYRIR FORELDRA OG NEMENDUR Í 8. - 10. BEKK, MIÐVIKUDAGINN 10. APRÍL NK. Það er mikilvægt fyrir foreldra að tala við barn sitt um kynlíf. Mörgum foreldrum finnst erfitt að ræða þessi mál við börnin sín og því er gott að fá fræðslu um það hvernig best er að nálgast þetta málefni. Þannig geta foreldr...

Lesa meira
Smávægilegar breytingar á skóladagatali
9. apríl 2013
Smávægilegar breytingar á skóladagatali

Ágætu foreldrar Í samráði við starfsmenn skólans og Skólaráð hefur verið gerð smávægileg breyting á skóladagatali Akurskóla. Starfsdagur sem vera átti 30. apríl hefur verið færður til 22. apríl. Þetta er gert til að kennarar skólans komist á námskeið sem er skipulagt þennan dag um flippaða kennslu. Við vonum að þetta komi sér ekki illa og bið...

Lesa meira
Akurskóli í samstarfi við Samvinnu
4. apríl 2013
Akurskóli í samstarfi við Samvinnu

Bára Jónsdóttir hefur verið í starfsþjálfun á bókasafni Akurskóla undanfarnar vikur. Kolbrún Alexandersdóttir   starfsmaður bókasafnsins hefur veitt Báru tilsögn og vill Akurskóli þakka Báru fyrir samstarfið sem var afar gott....

Lesa meira
Skólahreysti í kvöld á RÚV
2. apríl 2013
Skólahreysti í kvöld á RÚV

Í kvöld kl. 21:30 verður sýndur þáttur um Skólahreysti og í þessum þætti verður lið Akurskóla að keppa. Hvetjum alla til að horfa á okkar nemendur sem stóðu sig frábærlega vel sem og önnur lið úr Reykjanesbæ....

Lesa meira
Árshátíð
22. mars 2013
Árshátíð

Árshátíð skólans var haldin föstudaginn 22. mars. Hátíðin var þrískipt eins og venjulega, salurinn var skreyttur hátt og lágt með páskaeggjum sem hver bekkur bjó til og fallegum fiðrildum. Nemendur stóðu sig frábærlega hvort sem var í leik, söng eða dansi og atriðin voru hin glæsilegustu. Að hátíðunum loknum gæddu nemendur, foreldrar og starfsfólk ...

Lesa meira
Gleðilega páska
22. mars 2013
Gleðilega páska

Starfsfólk Akurskóla óskar nemendum og foreldrum þeirra gleðilegra páska. Skólastarf hefst aftur miðvikudaginn 3. apríl samkvæmt stundaskrá....

Lesa meira
Árshátíð
18. mars 2013
Árshátíð

Árshátíð nemenda verður 22. mars. Nemendur mæta prúðbúnir með forráðamönnum og/eða ættingjum sínum á sal. Þar flytja nemendur ýmis atriði sem þeir hafa æft vikurnar á undan.  Að sýningu lokinni fara nemendur með forráðamönnum og/eða ættingjum í sitt kennslurými þar sem þau þiggja veitingar í boði foreldra. Á Árshátíðina koma allir með drykki fy...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla