Fréttir
Hreinsun á strandlengjunni
Í gær fóru nemendur og starfsmenn út að hreinsa strandlengjuna með aðstoð Bláa hersins. Tekið var til hendinni og mikið af rusli safnað saman úr fjörunni. Nemendur söfnuðu 360 kg af rusli. Vel gert! http://www.vf.is/frettir/hreinsudu-rusl-af-strondinni-i-njardvik/55135...
Lesa meiraKynning á sjávarútvegi
Nemendur í 10. bekk fengu kynningu á sjávarútvegi í morgun. Þeir fengu að sjá tösku fulla af afurðum úr fiski sem fáir vita að eru framleiddar á Íslandi og fengu þau að meðhöndla þessar vörur. Kynningin er verkefni fyrir skóla sem hefur það að markmiði að efla meðvitund og vekja áhuga á sjávarútvegi hjá nemendum í 10 bekk í grunnskóla. Borið hefur ...
Lesa meiraBreytingar á skóladagatali Akurskóla
Ágætu foreldrar Á starfsmannafundi í Akurskóla 23. október var samþykkt einróma að óska eftir umsögn Skólaráðs Akurskóla og í kjölfarið Fræðsluráðs á breytingum á skóladagatali skólans. Skólaráð samþykkti þessar breytingar án athugasemda á fundi 24. október og Fræðsluráð samþykkti breytingarnar 1. nóvember. Helstu breytingar eru að við erum...
Lesa meiraNarfakotsseyla
Það eru spennandi dagar framundan í Akurskóla og leikskólunum Akri og Holt. Vikuna 5. – 9. nóvember hefjumst við handa við að gera þrautabraut í Narfakotsseylu. Narfakotsseyla er sameiginlegt útikennslusvæði þessara þriggja skóla. Uppbygging svæðisins hefur staðið yfir í langan tíma en nú er þar að finna skýli, vísi að eldstæði, bryggju, brú og bek...
Lesa meiraFyrirlestur á vegum FFA (Foreldrafélag Akurskóla).
Hafþór Barði Birgisson, tómstunda- og félagsmálafræðingur mun halda fyrirlestur um tölvunotkun barna og unglinga. Fyrirlesturinn verður haldinn á sal Akurskóla 1. nóv. nk. kl. 20.00 - 21.00. Þetta er þarft umræðuefni og vonumst við til að sjá sem flesta foreldra/forráðamenn. Takið kvöldið frá:) Bestu kveðjur Stjórn FFA...
Lesa meiraBrúum bilið
Undanfarið hafa heimsótt okkur börn af leikskólunum Holti og Akri. Þetta eru þau börn sem hefja sína skólagöngu næsta haust og mun meginþorri þeirra stunda nám sitt hér í Akurskóla. Deildarstjóri gekk með þeim um skólann og sýndi þeim skólahúsnæðið. Í nóvember fara nemendur 1. bekkja í heimsókn á leikskólana....
Lesa meiraVetrarleyfi
Föstudaginn 26. október og mánudaginn 29. október er vetrarfrí í skólanum. Þá daga er engin kennsla og frístundaskólinn lokaður. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 30. október. Hafið það sem allra best í fríinu....
Lesa meiraÁki Grans
Við þökkum kærlega fyrir þessa merku gjöf. Þessi verk eru ekki bara falleg heldur nýtast þau til að fræða nemendur okkar um menningu og sögu svæðisins. Það er gott að eiga velunnara að sem hugsa um skólann. Takk kærlega Áki og fjölskylda....
Lesa meiraTækniörðuleikar vegna tölvupósts.
Vegna tækniörðuleika er ekki hægt að senda kennurum póst í dag. Vonandi verður pósturinn kominn í lag á morgun....
Lesa meiraGöngum í skólann
Göngum í skólann er verkefni sem nemendur í Akurskóla hafa verið þátttakendur í undanfarnar vikur. Nemendur voru hvattir til að ganga eða hjóla í skólann þessar 4 vikur. Einnig voru þeir nemendur sem þurftu að taka strætó eða var skutlað af foreldrum hvattir til að fara út í einhverri vegalengd frá skólanum og fengu þannig skráð að þau hefðu gengið...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.









