Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin 2011
14. mars 2011
Stóra upplestrarkeppnin 2011

Fimmtudaginn 3. mars fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2011. Fulltrúar Akurskóla að þessu sinni voru þau Adam Eiður Ásgeirsson og Una María Magnúsdóttir. Þau stóðu sig með mikilli prýði og óskum við þeim til hamingju með frábæran upplestur. Við þökkum einnig öllum nemendum í 7. bekkjum Akurskóla fyrir þátttökuna í þessari keppni og hvet...

Lesa meira
Tónleikar hjá forskóla 2
14. mars 2011
Tónleikar hjá forskóla 2

Nemendur í 2. bekk stóðu sig með prýði í dag þegar þeir tóku á móti lúðrasveit og rokkhljómsveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem spiluðu undir hjá þeim á tónleikum í Akurskóla dag. Að þessu sinni voru áheyrendur nemendur í 1. og 3. bekk. Annað kvöld, 15. mars, verða haldnir aðrir tónleikar í Íþróttahúsinu í Njarðvík með öllum grunnskólunum o...

Lesa meira
Öskudagur í Akurskóla
11. mars 2011
Öskudagur í Akurskóla

Það var sannarlega líf og fjör í Akurskóla á öskudag. Nemendur mættu í búningum í skólann og höfðu margir lagt mikla vinnu í að undirbúa sig og foreldrar aðstoðað við förðun o.þ.h. Kennsla var í fyrstu tveimur tímunum en kl. 10 hófst öskudagshátíðin með því að allir marseruðu inn í íþróttahús með tilheyrandi undirspili. Í íþróttasalnum var hægt að ...

Lesa meira
Öskudagur í Akurskóla
8. mars 2011
Öskudagur í Akurskóla

Öskudagur er skertur nemendadagur í Akurskóla. Við munum bregða á leik og hafa gaman í tilefni dagsins og nemendur mega mæta í furðufötum en vopn eru ekki leyfð. Akurskjól er opið venju samkvæmt fyrir þau börn sem þar eiga pláss. Allir nemendur mæta í skólann með skólatöskuna kl. 8.10 og eru fram að mat. Nemendur í 1.-5. bekkjum borða kl.11.20 og f...

Lesa meira
Bókagjöf til heiðurs minningu Maríu Kjeld
8. mars 2011
Bókagjöf til heiðurs minningu Maríu Kjeld

Síðastliðinn miðvikudag fékk Akurskóli afhenta veglega bókagjöf, alls um 200 titla, til heiðurs minningu Maríu Kjeld. Hjónin Magnús Valur Pálsson og Jóna Guðrún Jónsdóttir afhentu gjöfina en María var móðursystir Jónu Guðrúnar. Það er þeim hjónum sérstakt ánægjuefni að bækurnar hennar Maríu fái nýtt hlutverk hér í Akurskóla. Uppistaðan í safninu er...

Lesa meira
Í upphafi miðannar
4. mars 2011
Í upphafi miðannar

Nú er ný önn hafin og byrjuðu nemendur önnina á að setja sér markmið sem þeir skráðu niður á litla fugla sem nemarnir okkar, Heiða og Sigga útbjuggu. Þessa fugla (markmiðin) hengdu nemendur síðan upp í fuglabúr sem við gerðum. Þegar nemendur hafa náð markmiðum sínum fá þeir að hengja fuglana á trjágrein sem er búið að koma fyrir í rýminu. Það hef...

Lesa meira
Viðtöl vegna námsmats
28. febrúar 2011
Viðtöl vegna námsmats

Við minnum á viðtöl vegna námsmats sem fara fram þriðjudaginn 1. mars en þá mæta nemendur með foreldrum sínum í viðtal til umsjónarkennara og taka við vitnisburði. Engin kennsla er í skólanum þennan dag en Frístundaskólinn Akurskjól er opinn fyrir börn sem þar eiga vist frá 8.10-16.00....

Lesa meira
Heimsókn á byggðasafn
24. febrúar 2011
Heimsókn á byggðasafn

Nemendur í 4. og 5. bekk fóru í gær, miðvikudaginn 24. febrúar, í heimsókn á byggðasafnið Njarðvík. Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar, tók á móti hópnum og sýndi nemendum safnið. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og fannst gaman að skoða gömlu hlutina og hlusta á útskýringar Sigrúnar Ástu á lifnaðarháttum fólks áður fyr...

Lesa meira
Ernir á Skólaþingi
24. febrúar 2011
Ernir á Skólaþingi

Þriðjudaginn 22. febrúar fóru nemendur í 10.bekk í ferð í höfuðborgina. Þeir heimsóttu Skólaþing þar sem þeir fræddust um starfshætti Alþingis. Farið var í hlutverkaleik og þeir fengu tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að samþykkja frumvarp og spreyta sig í ræðumennsku. Frá menningu miðbæjarins lá leiðin í Smáralindina þar sem þeir...

Lesa meira
Nýtt Korn komið út
24. febrúar 2011
Nýtt Korn komið út

Nýtt tölublað er komið út af Korninu, fréttabréfi Akurskóla. Að þessu sinni er meðal annars sagt frá vel heppnaðri þemaviku í janúar, þróunarverkefninu Samstarf til árangurs, leikritinu NO drama auk margra annarra frétta sem allar eiga það sammerkt að lýsa fjölbreyttu og skapandi skólastarfi. Eintak af Korninu má nálgast hér til hægri á heimasíðu s...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla