Fréttir
Starfsdagur og vetrarfrí í Akurskóla
Fimmtudaginn 24. febrúar er starfsdagur kennara og föstudaginn 25. febrúar er vetrarfrí í Akurskóla. Engin kennsla verður þessa daga og nemendur því í fríi frá skólastarfi báða dagana. Kennarar munu hins vegar vera að störfum þessa daga og Frístundaskólinn Akurskjól verður starfræktur báða dagana frá 8.10-16.00 fyrir börn sem þar eiga vist....
Lesa meiraSkemmtileg stund með barninu þínu.
Hvað er skemmtilegra en að eiga notalega stund með barni sínu og um leið að kynnast skólasystkinum barnsins. Á morgun miðvikudag 23 febrúar kl. 19 er seinni hluti námskeiðsins,,Ég og þú, þú og ég við tvö saman" fyrir börn á miðstigi í Akurskóla.Góð þátttaka var meðal barna og foreldra á fyrri hluta námskeiðsins og voru fjölbreytt námskeið í boði....
Lesa meiraÍsland áður fyrr
Nú eru nemendur í 4. og 5. bekk að vinna með námsefnið Ísland áður fyrr: Heimilið. Þar segir frá því hvernig heimili voru haldin á Íslandi fyrr á öldum. Sagan gerist á bænum Hvammi og fjallar um daglegt líf fjölskyldunnar sem þar býr. Nemendur lesa bókina saman, spjalla um efni hennar og vinna verkefnahefti þar sem viðfangsefnið er torfbærinn, útli...
Lesa meiraSundlaugarpartý hjá Hnísum og Kjóum
Hnísur og Kjóar gerðu sér dagamun og héldu sundlaugarpartý í sundlaug Akurskóla. Mikið fjör var í partýinu og skemmtu sér allir vel....
Lesa meiraBekkjarkvöld hjá Hnísum
Hnísur héldu bekkjarkvöld 9. febrúar sl. og buðu foreldrum sínum. Nemendur sáu sjálf um dagskrána sem státaði m.a. af ljóðalestri, brandörum, leikriti, fiðluleik og gítarleik. Að lokinni dagskrá var öllum boðið að fá sér góðgæti af kaffihlaðborðinu. Bekkjarkvöldið var mjög vel heppnað og skemmtu sér allir vel....
Lesa meiraStóra upplestrarkeppnin í 7. bekk
Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Akurskóla var haldin föstudaginn 18. febrúar en 13 nemendur í 7. bekk lásu upp úr bókinni Undraflugvélin eftir Ármann Kr. Einarsson og ljóð af eigin vali. Tveir nemendur voru valdir úr þessum hópi til að taka þátt í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjarnesbæ sem haldin verður í Bíósal Duushúsa 3. m...
Lesa meiraStóra upplestrarkeppnin í Akurskóla
Á föstudaginn kl: 12:45, flytja þeir 13 nemendur, sem komust áfram í Stóru upplestrarkeppninni, texta og ljóð fyrir 6.-7. bekk og kemur þá í ljós hvaða tveir nemendur munu keppa fyrir hönd Akurskóla á Duus í mars. Nemendur hafa staðið sig vel í framsögn og var erfitt að velja þessa 13 nemendur og það verður enn erfiðara að velja bara tvo úr hópnum....
Lesa meiraVITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA
Þriðjudaginn 15. febrúar kl. 20.00 í Kirkjulundi, verður námskeið fyrir skólaforeldra í Reykjanesbæ undir yfirskriftinni VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA. Á námskeiðinu fjallar Helga Margrét Guðmundsdóttir um lýðræðislega aðkomu foreldra að skólastarfinu og hvernig foreldrar geta haft áhrif á nám og líðan barna sinna.......
Lesa meiraÓskað eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011 verða veitt 24. maí næstkomandi í Þjóðmenningarhúsinu. Óskað er eftir tilnefningum frá einstaklingum, hópum og félögum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins....
Lesa meiraRauður dagur í Akurskóla
Mánudaginn 14. febrúar er litadagur, lögð verður áhersla á vináttu, kærleika og gleði. Mælst er til þess að sem flestir séu í einhverju eða skreyttir einhverju rauðu í tilefni dagsins. Með von um góða þátttöku J...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.









