Fréttir

Litla upplestrarkeppnin í 4.-5. bekk.
12. apríl 2011
Litla upplestrarkeppnin í 4.-5. bekk.

Í síðustu viku var Litla upplestrarkeppnin haldin í 4. og 5. bekk. Fyrirmynd að keppninni er Stóra upplestrarkeppnin sem haldin er á landsvísu fyrir nemendur í 7. bekk ár hvert. Forkeppni var haldin í Litlu upplestrarkeppninni í hverjum bekk og fjórir fulltrúar valdir til þátttöku í lokakeppninni sem haldin var í sal Akurskóla 6. apríl sl....

Lesa meira
Tónleikar í 88. húsinu.
12. apríl 2011
Tónleikar í 88. húsinu.

Unglingartónleikar verða í 88. húsinu þann 14.apríl. Þettað eru fjáröflunartónleikar fyrir arfgengri heilablæðingu. Húsið opnar klukkan 19 en tónleikarnir eru frá kl. 20-23. Miðaverð er 700 kr....

Lesa meira
Sýning hjá 2.-3. bekk
7. apríl 2011
Sýning hjá 2.-3. bekk

Í dag sáu krakkarnir í 2.-3. bekk í Akurskóla sýningu um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Krakkarnir í hverfinu, er leikþáttur þar sem brúður eru notaðar til að fræða börnin um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Fræðslan felst í því að brúðurnar ræða saman um það sem þær hafa lent í. Stefán segir vini sínum frá því hvernig mamma hans lamdi h...

Lesa meira
Akurpenninn 2011
5. apríl 2011
Akurpenninn 2011

Akurpenninn 2011 Ritunarsamkeppnin, Akurpenninn, var haldin í fyrsta sinn nú í ár. Keppnin var fyrir nemendur í 4. – 10. bekk og viðfangsefnið var vinátta. Alls bárust rúmlega þrjátíu sögur í keppnina sem fjögurra manna dómnefnd las yfir. Fern verðlaun voru veitt fyrir bestu sögurnar en þau hlutu Karen Mist Arngeirsdóttir Hnísum, Eydís Ósk Kolbein...

Lesa meira
Aðstoðarskólastjóri kvaddur.
1. apríl 2011
Aðstoðarskólastjóri kvaddur.

Í gær kvöddu nemendur og starfsmenn Akurskóla Lars aðstoðarskólastjóra á sal. Lars hefur tekið við starfi skólastjóra í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði og óskum við honum velfarnaðar í nýju starfi og þökkum honum fyrir samstarfið í Akurskóla. Halldóra Kristín Magnúsdóttir tekur við starfi Lars og mun hún koma til starfa í næstu viku. Við bjóðum Halld...

Lesa meira
Árshátíð heppnaðist vel
29. mars 2011
Árshátíð heppnaðist vel

Árshátíð Akurskóla heppnaðist rosalega vel. Þemað hjá okkur var klassík og við í 6.-7. bekk ákváðum að vinna með tónskáld c.a. frá tímabilinu í kringum 1200-1700. Við kennararnir ákváðum að leyfa nemendum að njóta sín í hugmyndavinnunni og lögðum því einungis af stað með beinagrind að hópaskiptingum....

Lesa meira
Samstíga foreldrar í Akurskóla
28. mars 2011
Samstíga foreldrar í Akurskóla

FFA býður foreldrum Akurskólabarna upp á kvöldkaffi með starfsmönnum skólans þriðjudaginn 29. mars kl. 20:00 á sal. Ætlunin er að ræða hvernig skólasamfélag Akurskóla getur stuðlað að bættri líðan og námsárangri nemenda. Starfsfólk skólans mun kynna niðurstöður kannanna og kalla eftir samræðum við foreldra um heimanám. Með góðum kveðjum, stjórn FFA...

Lesa meira
Árshátíð Akurskóla
23. mars 2011
Árshátíð Akurskóla

Í dag héldu nemendur og kennarar Akurskóla glæsilega árshátíð. Atriðin voru fjölbreytt og má með sanni segja að nemendur hafi staðið sig vel og eigi svo sannarlega lof skilið fyrir flutning atriða. Þema árshátíðarinnar að þessu sinni voru klassísk tónverk. Nemendur túlkuðu tónverk eftir meistara liðinna alda og mátti sjá m.a. Árstíðinar eftir Vival...

Lesa meira
Árshátíðarball hjá 8.-10. bekkjum
23. mars 2011
Árshátíðarball hjá 8.-10. bekkjum

Árshátíðarball nemenda í 8-10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar verður haldið í Stapanum miðvikudaginn 23 mars. Húsið opnar kl.20:00 og stendur fjörið til kl. 23:00. Aðgangseyrir er kr. 1000 í forsölu og kr. 1500 við innganginn. Hljómsveitin Ingó og veðurguðirnir munu sjá um fjörið ásamt Friðrik Dór....

Lesa meira
Breyting á skóladagatali 2010-2011
23. mars 2011
Breyting á skóladagatali 2010-2011

Gerð hefur verið eftirfarandi breyting á skóladagatali þessa skólaárs, 2010-2011. Skólaslit Akurskóla færast fram og verða seinnipart 1. júní en ekki 3. júní eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Skóladagurinn 1. júní telst því vera tvöfaldur skóladagur þar sem nemendur mæta samkvæmt venju um morguninn og svo aftur síðar um daginn til að taka á mó...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla