Fréttir

Þorraþema byrjar á morgun
20. janúar 2009
Þorraþema byrjar á morgun

Þorraþema byrjar á morgun, miðvikudaginn 21. janúar og verður út þessa viku. Ekki verður kennt samkvæmt stundartöflu, sund, íþróttir og sérgreinar falla niður. Nemendur vinna í þemavinnu þessa daga og hafa nemendur þegar valið sig í hóp. Sýning verður á afrakstri nemenda á föstudaginn milli kl 13-15....

Lesa meira
Dúkkulísugerð
19. janúar 2009
Dúkkulísugerð

Fimmtudaginn 15. janúar fengum við heimsókn í Akursjól. Gunnella amma Samúels kom í heimsókn og kenndi börnunum að gera dúkkulísur. Gunnella ætlar að koma einu sinni í viku næstu vikurnar og kenna börnunum að búa til hluti sem hún lék sér með sem barn. Börnin voru mjög áhugasöm og var gaman að sjá hvað þau voru snögg að læra handtökin. Sjá myndir ...

Lesa meira
Flott án fíkna
19. janúar 2009
Flott án fíkna

Föstudagskvöldið 16. janúar sváfu krakkarnir í forvarnarhópnum “ Flott án fíkna” í Akurskóla. Krakkarnir mættu hálftíu um kvöldið og fóru heim um níuleytið daginn eftir. Eins og sjá má á myndunum þá var mikið fjör hjá þeim. Samkvæmt dagskrá áttu allir að vera komnir í ró um tvöleytið og sofnaðir í síðasta lagi klukkan þrjú. Það varð þó ekki raunin...

Lesa meira
Heimilisfræðismiðja
14. janúar 2009
Heimilisfræðismiðja

Við erum ofsalega dugleg í smiðju. Við kunnum að baka og smyrja svona brauðkarla sem eru alveg ótrúlega hollir, góðir og skemmtilegir. Þegar við erum búin að borða karlana okkar förum við að vaska upp og ganga frá. Við erum mjög flink við það og dugleg að þrífa borð og stóla og bara allt sem fyrir verður....

Lesa meira
Þorraþema í Akurskóla
13. janúar 2009
Þorraþema í Akurskóla

Kennarar eru nú í óðaönn að undirbúa þemadaga sem verða haldnir dagana 21., 22. og 23. janúar. Að þessu sinni verður þorrinn í allri sinni dýrð tekinn fyrir. Nemendur eru að velja sig í hópa eftir áhuga á hinum ýmsu hlutum sem boðið verður upp á. Má þar nefna sögur og lifnaðarhætti fyrr á tímum, dans, kveðskap, vörður og mat svo eitthvað sé nefnt....

Lesa meira
Skólastarf á nýju ári
12. janúar 2009
Skólastarf á nýju ári

Nú er kennsla hafin að nýju eftir jólafrí og ber ekki á öðru en að skólastarf fari vel af stað. Að venju var samsöngur hjá 4.-7. bekkjum á föstudaginn og voru Krummar með atriði. Þökkum við þeim fyrir skemmtilega dagskrá en framundan er viðburðarríkt skólastarf með þorraþema í næstu viku....

Lesa meira
Skipting á valgreinum
9. janúar 2009
Skipting á valgreinum

Minnum á annaskipti verða mánudaginn 12. Janúar hjá 8. -9. Bekkjum. Þá víxlast valgreinar s.s. tónmennt verður tölvur A-Ö og skrautskrift verður ljósmyndun. Góða helgi....

Lesa meira
JÓLAKVEÐJA
19. desember 2008
JÓLAKVEÐJA

Starfsmenn Akurskóla óska nemendum og foreldrum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Skólastarf hefst aftur þriðjudaginn 6. janúar 2009 samkvæmt stundaskrá....

Lesa meira
Jólasýning
19. desember 2008
Jólasýning

Það var gaman að sjá hvað margir foreldrar sáu sér fært á að mæta á jólasýninguna okkar. Eins og fram kom í bréfinu til ykkar, þá sýndu börnin leikrit, sungu nokkur lög og að lokum flugu nokkrir góðir brandarar sem kættu börnin og gesti þeirra. Við munum án efa vera duglegri á næsta ári að bjóða ættingjum og vinum að koma til okkar og eiga með okku...

Lesa meira
Jólasýning Akurskjóls
19. desember 2008
Jólasýning Akurskjóls

Börnin í Akurskjóli buðu foreldrum sínum og vinum í heimsókn síðasta dag fyrir jól. Stelpurnar úr 1. bekk sýndu leikrit um Grýlu og Leppalúða með miklum tilþrifum. Eftir leikritið voru nokkrir skemmtilegir brandarar sagðir og að lokum sungu börnin nokkur falleg jólalög. Eftir að sýningu lauk buðu börnin gestum sínum kaffi og piparkökur sem þau höfð...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla