Fréttir
Skátastarf Heiðbúa
Mánudaginn 2. febrúar sl. kom Hrafnhildur, formaður skátanna og kynnti fyrir okkur skátastarf Heiðabúa. Hrafnhildur kom klædd í hátíðarbúningnum og sýndi krökkunum allskonar klúta og merkingu þeirra. Síðan tókum við einn drekafund en það er einmitt fundur hjá yngstu krökkunum í skátunum. Hún sýndi þeim hvernig hann gengur fyrir sig og svo var farið...
Lesa meiraSkemmtiatriði í skólanum
Fimmtudaginn sl. var haldin skemmtun í salnum í Akurskóla þar sem 8.-9. bekkur voru að sýna skemmtiatriði. Þetta byrjaði með því að hópur úr tónlistarvali var búinn að vera að æfa lag fyrir áramót til að sýna fyrir bekkina. Þau fluttu lagið Popplag í G dúr og gerðu það rosalega vel. Svo fengum við að sjá skemmtiatriði frá Spóum. En þau gerðu grín...
Lesa meiraTannverndarvika 2009
Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár er sérstök áhersla á tannþráðinn og daglega notkun hans....
Lesa meiraSundferð
Miðvikudaginn 28. janúar fengum við að skreppa í sund í sundlaug Akurskóla. Það vantaði ekki fjörið hjá okkur. Þetta tókst með eindæmum vel og erum við þegar farin að plana aðra sundferð sem fyrst. Myndirnar í myndsafni Akurskjóls segja allt sem segja þarf....
Lesa meiraLeikvöllur á Vallarheiði
Mánudaginn 26. janúar fór Akurskjól í ferð upp á Vallarheiði. Þar fengum við að fara inn í skemmu sem hefur að geyma skemmtileg leiktæki. Farið var með strætó alla leið upp á Vallarheiði og þar var nestið drukkið á staðnum. Þetta fannst börnunum mjög gaman, enda ekki á hverjum degi sem við fáum svona tækifæri. Þessi ferð var verðlaun sem börnin fe...
Lesa meiraÞróunarverkefni
Þróunarverkefni í samvinnu við Fjölbrautarskóla Suðurnesja fór af stað í Akurskjóli þriðjudaginn 27. janúar. Verkefnið felst í því að stúlkur úr FS koma til okkar tvisvar í viku og taka þátt í starfinu okkar. Þær koma til með að vinna með okkur verkefni sem börnin hafa ákveðið og síðan koma þær með verkefni sem þær hafa ákveðið að gera. Verkefnin ...
Lesa meiraPizzuveisla Akurskjóls
Föstudaginn 23. janúar var pizzaveisla hjá okkur í Akurskjóli. Börnin fengu að búa til sína eigin pizzu, sem síðan var borðuð í kaffinu. Börnunum fannst þetta mjög skemmtilegt og sýndu sumir nokkra pizzubakaratakta. Við munum örugglega endurtaka þetta fljótlega. Myndir eru í myndaalbúmi Akurskjóls og tala þær sínu máli....
Lesa meiraTíminn líður
Tíminn líður Gærdagurinn horfin er Morgundaginn veit engin hvað ber í skauti sér. Í dag er dagurinn sem þú þarft að lifa. Tíminn líður, líður fljótt einsog ekkert sé. Þú veist ekki hvað lífið er Mikilvægt fyrir en þú lendir í hörmungunum sjálfum. Hörmungarnar geta verið hvað sem er, litlar eða stórar. Lífið getur g...
Lesa meiraÞorraþema lokið
Þá er þemadögum um þorrann lokið og afraksturinn hreint ótrúlegur. Þemavikan hófst á miðvikudaginn síðastliðinn og stóð yfir í þrjá daga. Nemendur fengu að velja sér stöðvar og fengu allir að taka þátt í því vali sem þeir settu efst á listann. Árgöngum var blandað saman í hópa og fór hver hópur á þrjár stöðvar og vann ýmis verkefni. T.d. var farið ...
Lesa meiraSýning á morgun kl 13-15. þorraþema
Við bjóðum foreldra hjartanlega velkomna á sýningu á þorraþema á morgun, föstudag 23. janúar á milli kl 13-15. Nemendur eru búnir að vera vinna í fjölbreyttum verkefnum tengdum þorranum bæði í máli og myndum. Vonumst till að sjá sem flesta....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.












