Fréttir
8.-9. bekkur fékk aðstoð frá 2.-3. bekk
Í gær voru nemendur úr 2-3 bekk sérlegir gestir og aðstoðarmenn hjá nemendum í 8-9. bekk. Þau komu annarsvega í tíma í upplýsingamennt og hins vegar aðstoðuðu þau við skreytingar á jólakortakassa. Þetta heppnaðist einstaklega vel og alveg næsta víst að um áframhaldandi samstarf verður á milli yngsta og elsta stigs á næstunni....
Lesa meira2.-3. bekkir voru aðstoðarmenn hjá 8.-9. bekk
Í gær voru nemendur úr 2-3 bekk sérlegir gestir og aðstoðarmenn hjá nemendum í 8-9. bekk. Þau komu annarsvega í tíma í upplýsingamennt og hins vegar aðstoðuðu þau við skreytingar á jólakortakassa. Þetta heppnaðist einstaklega vel og alveg næsta víst að um áframhaldandi samstarf verður á milli yngsta og elsta stigs á næstunni....
Lesa meiraBrúum bilið
Þriðjudaginn sl. komu skólahópar frá leikskólunum Holti og Akri í heimsókn. Tilgangurinn var að eiga sameiginlega hátíðarstund með 1. bekk. Hóparnir komu saman á sal og áttu saman góða stund. Það voru sungin jólalög og hver hópur flutti sitt atriði. Börnin voru prúð og stillt og greinilega komin í jólaskap....
Lesa meiraLegokeppnin
Nemendur í Akurskóla tóku í fjórða skiptið þátt í Legóhönnunarkeppninni sem fram fór í Öskju laugardaginn 8. nóvember. Það voru nemendur úr 6. og 7. bekk sem skipuðu sveit Akurskóla að þessu sinni. Undirbúningur hefur staðið undanfarnar vikur undir leiðsögn hópstjórans Þormóðs Loga kennara í raunvísindum....
Lesa meiraLitlu jólin
Litlu jólin verða haldin í Akurskóla föstudaginn 19. desember. Á litlu jólunum horfum við á helgileik og dönsum í kringum jólatré á sal skólans. Einnig verður samvera í kennslurýmum en umsjónarkennarar veita nánari upplýsingar um fyrirkomulag samverustunda. Nemendur mæta sem hér segir á litlu jólin: 1.-3. bekkur mætir kl. 8:10-11:00 8.-9. bek...
Lesa meiraJólamatur
Á föstudag var boðið upp á jólamat í hádeginu. Kennarar þjónuðu nemendum til borðs og báru fram hangikjöt ásamt meðlæti en öllu þessu var skolað niður með jólaöli. Jólalög hljómuðu í matsalnum og setti það skemmtilegan blæ á þessa jólastund. Nemendur unglingastigsins notuðu tækifærið og þökkuðu Skólamat fyrir morgunmatinn, hafragraut og tilheyrandi...
Lesa meiraJólamatur í Akurskóla!
Þann 12 desember var boðinn upp á jólamat í matsal skólans. Nemendur voru dekraðir vegna þjónustu kennara, sem báru matinn á bökkum. Þetta árið fengum við nemendurnir jólaöl, hangikjöt, rauðkál, grænar baunir, kartöflur og sósu.Allir borðuðu vel og urðu vel södd. - Þá var kátt í höllinni!!...
Lesa meiraHeimsókn til leirlistarkonu.
Krakkarnir í leirlistarsmiðju heimsóttu leirlistarkonuna Villu. Nemendur tóku strætó vegna veðurs enda var þetta rétt hjá skólanum. Þegar nemendurnir komu fræddi hún okkur um leir og einnig gler, þar sem hún býr til verk og selur. Þegar hún var búin að sýna okkur allt þá fengu nemendur sér hressingu áður en þeir fóru heim....
Lesa meiraKirkjuferð á aðventunni
Föstudaginn 12. desember fara nemendur í Akurskóla í heimsókn í Njarðvíkurkirkju þar sem Sr. Baldur Rafn sóknarprestur tekur á móti okkur. Við ætlum að eiga hátíðlega stund, syngja jólalög, hlýða á jólasögu og jólahugvekju. Þennan sama dag snæðum við jólahangikjöt í hádeginu og ætla kennarar að þjóna nemendum til borðs. Boðið verður upp á malt og a...
Lesa meiraTil foreldra barna í frístundaskóla Reykjanesbæjar
Öll sveitarfélög glíma nú við verulegan samdrátt í tekjum sem mæta þarf með hagræðingu í rekstri. Reykjanesbær leggur áherslu á grunnþjónustu við bæjarbúa á sviði grunnskóla, leikskóla og félagsþjónustu. Óhjákvæmilegt er að endurskoða aðra þætti í starfi okkar tímabundið, sem við höfum getað boðið með miklum niðurgreiðslum undanfarin ár....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.










