Fréttir

Ég og þú, þú og ég, við tvö saman.
10. desember 2012
Ég og þú, þú og ég, við tvö saman.

Það ríkti mikil gleði þegar foreldrar og nemendur í 1. – 3. bekk komu saman í nóvember sl. til að taka þátt í verkefninu „Ég og þú, þú og ég, við tvö saman. Þetta verkefni hefur verið árlegur viðburður á vegum Foreldrafélags Akurskóla undanfarin ár og tekist mjög vel. Í ár buðu foreldrar upp á sex smiðjur þ.e.a.s. leiki, minigolf, lærdóm um fugl...

Lesa meira
Upplestur úr Rökkurhæðum
7. desember 2012
Upplestur úr Rökkurhæðum

Í dag fengu nemendur í 6.-7. bekk góða gesti en rithöfundarnir, þær Birgitta Elín og Marta Hlín lásu fyrir þau úr nýjustu bók sinni Rökkurhæðir sem er fjórða bókin í þeim bókaflokki. Nemendur hlustuðu á lesturinn og sýndu mikinn áhuga....

Lesa meira
Kirkjuferð
6. desember 2012
Kirkjuferð

Í dag var farið í kirkjuferð í Njarðvíkurkirkju. Þar áttu nemendur hátíðlega stund saman og sungin voru falleg jólalög. Nemendur stóðu sig með prýði....

Lesa meira
Flöskuskeyti
5. desember 2012
Flöskuskeyti

Nýlega barst okkur skemmtilegur tölvupóstur sem sjá má hér að neðan. Við vígslu Narfakotsseylu fyrir ári síðan hentu nokkrir nemendur flöskuskeyti í sjóinn. Kristófer Jónsson sjómaður fann eitt í vikunni og sendi okkur þetta skemmtilega bréf. Við þökkum kærlega fyrir skemmtilegt bréf og Kristóferi fyrir að hafa gefið sér tíma til að skrifa okkur....

Lesa meira
Afhjúpun listaverks
3. desember 2012
Afhjúpun listaverks

Í dag er árs vígsluafmæli þar sem Narfakotsseyla var vígð formlega 1. desember 2011. Að því tilefni var afhjúpun á veggspjaldi sem sýnir sögu útikennslusvæðis Akurskóla. Nemendur úr 10. bekk voru viðstaddir afhjúpunina. Magnús Valur Pálsson hannaði veggspjaldið. Listaverkið má sjá í anddyri skólans....

Lesa meira
JÓLABINGÓ
30. nóvember 2012
JÓLABINGÓ

Þriðjudaginn 4. desember mun Foreldrafélag Akurskóla halda jólabingó á sal skólans. 1. - 3. bekkur kl. 17.00 - 18.30 4. - 6. bekkur kl. 18.30 - 20.00 7. - 10. bekkur kl. 20.00 - 21.30 Bingóspjaldið kostar 200 kr. Kveðja stjórn FFA...

Lesa meira
Brunavarnir Suðurnesja kíktu í heimsókn
28. nóvember 2012
Brunavarnir Suðurnesja kíktu í heimsókn

Í tilefni af eldvarnaviku komu fulltrúar Brunavarna Suðurnesja í heimsókn í 3.bekk og fræddu nemendur um brunavarnir Þeir fengu fræðslupakka með sér heim og getraun sem nemendur eiga að svara. Hápunkturinn var að fá að skoða slökkviliðsbílinn og sprauta vatni úr slöngunni. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt....

Lesa meira
Brynballet í heimsókn
28. nóvember 2012
Brynballet í heimsókn

Föstudaginn sl. komu fulltrúar frá Brynballet og voru með kynningu fyrir alla árganga skólans. Þær voru að kenna þeim að dansa og var mikið fjör í nemendum. Sjá myndir í myndasafni....

Lesa meira
"Ég og þú, þú og ég, við tvö saman"
21. nóvember 2012
"Ég og þú, þú og ég, við tvö saman"

Námskeiðið hjá 1.-3. bekk er í kvöld, fimmtudaginn 22. nóv. kl. 18:30-20:00 Nafnalisti verður í anddyrinu þegar þið komið á námskeiðið. Þetta er seinni dagur námskeiðsins og minnum við þá sem eiga eftir að greiða 300 kr. að gera það á morgun....

Lesa meira
Raunveruleikurinn í 10.bekk
20. nóvember 2012
Raunveruleikurinn í 10.bekk

Raunveruleiknum í 10. bekk er lokið þetta skólaárið og lenti Akurskóli í 5. sæti með 6382 stig. Við erum svakalega ánægð með þann árangur en ætlum okkur að gera enn betur á næsta ári. Allir nemendur í Örnum og Fálkum tóku þátt og stóðu sig vel. Rúmlega 1000 nemendur í grunnskólum á Íslandi lifðu í samfélagi Raunveruleiksins í 28 daga en þeir dagar...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla