Fréttir
Litlu jólin
Þann 20. desember verða "litlu jólin" Nemendur mæta til umsjónarkennara eins og hér segir: kl: 8:10-9:40 eru Kálfar,Háhyrningar,Kríur,Þrestir kl: 9:30-11 eru Hvolpar,Kópar,Hnúfubakar,Krummar,Spóar kl: 10:30-12 eru Kettlingar,Kiðlingar,Hnísur,Tjaldar,Ernir kl: 11:30-13 eru Kanínur,Húnar,Höfrungar,Kjóar,Fálkar Nemendur fara á sal...
Lesa meiraSkákiðkendur í Akurskóla
Tuttugu og níu keppendur mættu í Krakkaskák, mót sem haldið var í samstarfi við Samsuð, félagsmiðstöðvarnar á Suðurnesjum sl. laugardag. Akurskóli átti tvo fulltrúa í keppninni og lentu báðir í verðlaunasæti. Strákarnir kepptu í flokki drengja 11 – 16 ára þar sem Pálmi Viðar lenti í 2.sæti og Alexander Hauksson í 3.sæti. Við í Akurskóla óskum þeim...
Lesa meiraÞorgrímur Þráinsson les úr bók sinni
Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson kom í heimsókn í morgun og las fyrir nemendur úr 4.-7. bekk úr nýju bókinni sinni Krakkinn sem hvarf. Það er alltaf gaman að hlusta á Þorgrím en hann nær einstaklega vel til krakkanna sem hlustuðu af mikilli athygli....
Lesa meiraIngibjörg Kr. Ferdinandsdóttir
Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir rithöfundur kom í heimsókn í dag og las upp úr bók sinni Leyndarmál Kela. Það voru nemendur 2.-5. bekk sem hlýddu á Ingibjörgu lesa um þennan sniðuga kött sem segir söguna að mestu leyti í bókinni. Keli köttur er jú einstakur og hefur frá mörgu að tjá og lúrir á ótrúlegu leyndarmáli sem enginn veit um, ekki einu sinni...
Lesa meiraSkólahreysti
Skólahreystikeppni Akurskóla fór fram í gær, þann 12. des., þar sem nemendur úr 8.-10. bekk fengu að spreyta sig. Nemendur úr 6.-10. bekk horfðu á og hvöttu keppendur áfam. Keppt var annars vegar í hraðaþraut og einnig kepptu drengir í upphýfingum og dýfum og stúlkur í armbeyjum og að hanga. Gestadómarar voru Kristjana Hildur Gunnarsdóttir og Sævar...
Lesa meiraSundlaugarpartý Flott án fíknar
Sundlaugarpartý Flott án fíknar var haldið í sundlaug Akurskóla fimmtudaginn 29.nóvember. Mikið fjör var í lauginni og skemmtu krakkarnir sér vel, en hápunktur kvöldsins var þegar þeim tókst að henda Inga starfsmanni skólans út í laugina, það fannst þeim ótrúlega gaman....
Lesa meiraKaffihúsakvöld hjá Flott án fíknar
Hið árlega kaffihúsakvöld Flott án fíknar var haldið í byrjun desember á sal skólans. Nemendur hittust og hlustuðu á jólatónlist, fengu sér heitt kakó með rjóma og piparkökur og spiluðu síðan frameftir kvöldi....
Lesa meiraJólamatur
Í dag var jólamatur í Akurskóla, jólahangikjöt með uppstúf, eplasalati og tilheyrandi. Í eftirrétt fengu svo allir ísblóm. Sá siður hefur skapast að kennarar þjóni nemendum til borðs á þessum degi og kunnu nemendur greinilega vel að meta það og nutu matarins. Jólalög hljómuðu í matsalnum og setti það skemmtilegan blæ á þessa jólastund. Komnar eru ...
Lesa meiraHafþór Orri í Örnum sigraði Rímnaflæði 2012
Keppnin Rímnaflæði fór fram föstudaginn 23.nóvember í sal Hólabrekkuskóla í Breiðholti.Það var Hafþór Orri sem kom sá og sigraði ásamt vini sínum Ara Jónssyni frá Grindavík en þeir röppuðu og fluttu frumsamið lag eftir þá sjálfa sem heitir „Legðu við hlustir“. Strákarnir kalla sig Bjarnabófa. Hlusta má á lagið á vefnum youtube á þessari slóð: http:...
Lesa meiraJólabingó í Akurskóla
Mikil eftirvænting lá í loftinu sl. þriðjudagskvöld þegar jólabingó Foreldrafélags Akurskóla (FFA)fór fram. Fjöldi nemenda og foreldrar mættu á staðinn og margir fóru ríkari heim með flotta vinninga. Foreldrar og nemendur í 6. bekk sáu um bingóið og þökkum við þeim kærlega fyrir frábært bingó, sér í þeim foreldrum sem báru hita og þunga af því að...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.











