Fréttir

Akurskóli á iði
30. september 2012
Akurskóli á iði

Fyrri ferð haustsins var ganga á Berginu eða Hólmsbergi sem liggur frá Grófinni og inn í Helguvík og aftur til baka. Við fengum frábært veður og nutum þess að horfa á fjallasýnina frá Reykjanesi og alla leið yfir á Snæfellsnes. Það var endað í Skessuhellinum og heilsað upp á skessuna. Þetta er stutt og skemmtileg gönguleið....

Lesa meira
Akurskóli á iði
28. september 2012
Akurskóli á iði

Akurskóli á iði er gönguhópur nemenda, foreldra þeirra og kennara í Akurskóla. Á morgun, 29. september kl 10: Bergið – Helguvík – Bergið. Komið við í Skessuhelli að lokinni göngu og nestið borðað. Gangan tekur 2 klst. Engin hækkun. Hist er við Akurskóla kl. 10 og farið í samfloti þaðan. Vonumst til að sjá sem flesta...

Lesa meira
Starfsdagur
24. september 2012
Starfsdagur

Á morgun, föstudaginn 28. september er starfsdagur kennara. Engin kennsla verður í skólanum þennan dag. Frístundarskólinn Akurskjól verður einnig lokaður....

Lesa meira
Samræmd könnunarpróf
20. september 2012
Samræmd könnunarpróf

Samræmd könnunarpróf hjá nemendum í 4., 7. og 10. bekk eru á eftirfarandi dögum: 10. bekkur: Mánudagurinn 17.september íslenska Þriðjudagurinn 18.september enska Miðvikudagurinn 19.september stærðfræði 4. og 7. bekkur: Fimmtudagurinn 20.september íslenska Föstudagurinn 21.september stærðfræði Öll prófin hefjast kl. 8:30 að morgni og m...

Lesa meira
Fuglaskoðunarferð
18. september 2012
Fuglaskoðunarferð

Kiðlingar lögðu land undir fót og fóru að heimsækja fuglana sem búa á tjörnunum á Fitjunum. Byrjað var á að taka strætó þangað þar sem við þurftum að vera komin heim í skóla á réttum tíma í hádegismatinn. Það voru nú ekkert rosalega margir fuglar en líklega hafa þeir bara verið ennþá sofandi blessaðir. Það voru samt nokkrar hræður sem þáðu brauð fr...

Lesa meira
Krissi lögga kíkti í heimsókn í 1. bekk
18. september 2012
Krissi lögga kíkti í heimsókn í 1. bekk

Krissi lögga kom í heimsókn í dag og fræddi hann nemendur um hvað þarf að varast á leiðinni í skólann, hvernig maður gengur yfir götu, nota umferðarljós ef þau séu til staðar og hvernig nota á endurskinsmerki. Einnig ræddi hann um nauðsyn þess að nota reiðhjólahjálma og mikilvægi þess að þeir séu rétt settir á og rétt stilltir. Til að undirstrika m...

Lesa meira
Stjórn nemendaráðs 2012-2013
12. september 2012
Stjórn nemendaráðs 2012-2013

Á mánudaginn var kosið í stjórn nemendaráðs Akurskóla fyrir skólaárið 2012-2013. Stjórn nemendaráðs Akurskóla skólaárið 2012-2013 Gabríel Mattía Luppi : formaður. Vignir Örn Ágústsson : varaformaður. Sóley Ösp Sverrisdóttir: gjaldkeri. Karen Rós Smáradóttir: ritari. Pálmi Viðar Pétursson: meðstjórnandi og skoðunarmaður reikn...

Lesa meira
Skólapeysur
10. september 2012
Skólapeysur

Á samtalsdaginn, 11.september verður peysusala í Akurskóla á vegum 10. bekkjar í fjáröflunarskyni. Mátun verður í boði og tekið verður við pöntunum og greiðslu með peningum. Peysur sem í boði verða eru: -Renndar hettupeysur, svartar og rauðar: 5000 kr. -Heilar hettupeysur, svartar og rauðar: 4500 kr. Allar verða þær merktar Akurskóla. Ef...

Lesa meira
Samtalsdagur
10. september 2012
Samtalsdagur

Á morgun, þriðjudaginn 11. september, er samtalsdagur í Akurskóla. Þennan dag mæta nemendur með foreldrum sínum til viðtals hjá umsjónarkennara. Frístundaskólinn er opinn fyrir þá nemendur sem hafa skráð sig þar. Námsefniskynning hjá 1. bekk verður einnig þennan dag milli klukkan 8:15 og 9:30 í kennslurými hjá 1. bekk....

Lesa meira
Engin er verri þótt hann vökni
7. september 2012
Engin er verri þótt hann vökni

Síðasta miðvikudag örkuðu Kálfar og Kiðlingar af stað í veiðiferð þrátt fyrir ausandi rigningu. Farið var að tjörnunum sem eru hér rétt við skólann okkar en þar hafði hún Eydís, starfsmaður Náttúrustofu Reykjaness, lagt nokkrar gildrur fyrr um morguninn. Allir krakkarnir spreyttu sig á að veiða með háfi en það gekk auðvitað mis vel en ekki vantaði ...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla