Fréttir
1. des fagnaður í Narfakotsseylu
Nemendur og starfsmenn Akurskóla gengu fylktu liði niður á útikennslusvæðið okkar við Narfakotsseylu í morgun. Þar var búið að hlaða í bálköst og kveiktur varðeldur. Hópurinn tók lagið við varðeldinn og þeir Magnús myndmenntakennari og Guðmundur sem hefur stýrt vinnunni við uppsetningu útikennslustofunnar sögðu nokkur orð. Nemendur leikskólanna ...
Lesa meiraAllir í Narfakotsseylu á morgun
Á morgun, fimmtudaginn 1. des. verður farið að Narfakotsseylu. Búið er að hlaða upp nettan bálköst í Seylunni til að kveikja í á morgun og syngja saman. Börnin mega gjarnan koma með fána ef þau eiga þá til. Þetta verður flottur fullveldisfagnaður í Seylunni! Minnum ykkur á að láta börnin koma vel klædd í skólann á morgun og geti verið úti í rúma...
Lesa meiraEldvarnarvika
Þessa vikuna er eldvarnarvika hjá Brunavörnum um allt land. Liður í því er að hitta 3. bekkinga og fræða þá um eldvarnir. Þeir fengu fræðslupakka með sér heim og getraun sem nemendur eiga að svara. Hápunkturinn var að fá að skoða slökkviliðsbílinn og sprauta vatni úr slöngunni. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt....
Lesa meiraLaufabrauðsgerð
Laufabrauðsgerðin mun fara fram í Akurskóla fimmtudaginn 24. nóvember kl. 17-19. Poki með 5 laufabrauðum kostar 600 kr. Nauðsynlegt er að koma með laufabrauðsjárn eða hníf með beittum oddi ásamt skurðarbretti og svuntu. Síðan má ekki gleyma góða jólaskapinu. 6. bekkur mun bjóða veitingar til sölu. Hlaðborðið kostar 500 kr. pr. mann (frítt fyrir 6 á...
Lesa meiraNámsmatsdagur
Næstkomandi miðvikudag, þann 23. nóvember er námsmatsdagur. Þá fara fram foreldraviðtöl og afhending námsmats. Engin hefðbundin kennsla verður því í skólanum. Frístundarskólinn Akurskjól verður opinn frá 08:10 – 16:00 fyrir þau börn sem hafa sótt um það....
Lesa meiraNarfakotsseyla
Kæru foreldrar. Af einhverjum ástæðum tókst ekki fá fólk til vinnu síðasta laugardag þannig að vinnudagurinn féll niður þá. Við gerum því lokatilraun með að reka lokahnykkinn á það sem óklárað er í þessum áfanga næsta laugardagsmorgun kl.10. Það sem eftir að gera er að steypa niður 8 rekaviðardrumba sem verða notaðir í þrautabraut. Búið ...
Lesa meiraDagur íslenskrar tungu
Í dag á Degi íslenskrar tungu gera nemendur og starfsfólk Akurskóla sér dagamun á ýmsan hátt. Nemendur 6. og 7. bekkjar komu saman á sal í upphafi dags og Stóra upplestarkeppnin var formlega sett af stað. Af því tilefni las Karen Mist Arngeirsdóttir, sigurvegari Litlu upplestarkeppninar á síðasta skólaári, tvö ljóð fyrir nemendur. Að loknum uppl...
Lesa meiraStarfsdagur
Á föstudaginn, 18. nóvember er starfsdagur kennara. Engin kennsla verður í skólanum þennan dag. Frístundarskólinn Akurskjól verður opinn fyrir þau börn sem hafa skráð sig....
Lesa meiraLið Akurskóla 3 stigum frá undanúrslitum!
"Myglu Strumparnir" lið Akurskóla var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit í keppni á þrautabrautinni í First Lego Leage keppninni sem fram fór á Háskólatorgi í gær. Tilgangur keppninnar er "að blása ungu fólki í brjóst löngun til að skara fram úr á sviði tækni og vísinda." Keppnin er tvíþætt, annars vegar er keppt í hönnun og forritun vélmen...
Lesa meiraNemendur og starfsmenn hylltu Karólínu!
Nemendur og starfsmenn Akurskóla komu saman á sal í gær og óskuðu Karólínu myndmenntakennara til hamingju með Íslensku menntaverðlaunin og færðu henni bók að gjöf af því tilefni. Karólína er í námsleyfi í vetur en við höfum samt fengið að njóta krafta hennar við uppbyggingu útikennslusvæðisins við Narfakotsseylu. Í ávarp til Karólínu sagði Jóní...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.





.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)





