Fréttir

Upplestrarkeppni Akurskóla
18. febrúar 2009
Upplestrarkeppni Akurskóla

Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Akurskóla var haldin miðvikudaginn 18. febrúar en Stóra upplestrarkeppnin er haldin í 7. bekk í öllum grunnskólum landsins. Í dag lásu 11 nemendur upp texta og ljóð af eigin vali og voru tveir nemendur valdir úr hópi þeirra og munu þeir taka þátt í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjarnesbæ sem hald...

Lesa meira
Starfsdagur
16. febrúar 2009
Starfsdagur

Þriðjudagurinn 17. febrúar er starfsdagur kennara. Nemendur mæta ekki í skólann þennan dag. Frístundarskólinn Akurskjól verður opinn frá kl. 8.10-17.00 fyrir þau börn sem hafa sótt um það....

Lesa meira
Skólahreysti
13. febrúar 2009
Skólahreysti

Við þökkum Sigfúsi, Aroni, Evu og Ólöfu fyrir vaska framgöngu í Skólahreysti í gærkvöldi. Þau voru glæsilegir fulltrúar okkar í þessari keppni þó ekki hafi þau unnið til verðlauna í þetta skiptið en þau lentu í 10 sæti en alls tóku 15 skólar þátt í þessum riðli. Ekki síður glæsilegri voru okkar frábæru stuðningsmenn en bæði nemendur og kennarar fjö...

Lesa meira
Bakstur í Akurskjóli
12. febrúar 2009
Bakstur í Akurskjóli

Áslaug og Bryndís nemendur úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja komu til okkar í heimsókn og áttu skemmtilegar stundir með börnunum í Akurskjóli. Stelpurnar komu í fjögur skipti og stoppuðu hjá okkur í tvo tíma í senn. Síðasta daginn bökuðu þær möffins með börnunum. Eins og sjá má á myndunum í myndasafni Akurskjóls voru allir mjög glaðir enda girnilegar ...

Lesa meira
112 dagurinn
11. febrúar 2009
112 dagurinn

112 dagurinn er í dag. Að því tilefni fengum við Kristján Karlsson Grens í heimsókn en hann fræddi nemendur í 4.-9. bekkjum um starfssemi neyðarnúmersins 112 (einn, einn tveir). Nemendur voru mjög áhugasamir og voru duglegir að spyrja. Þökkum við Kristjáni kærlega fyrir innlit sitt til okkar....

Lesa meira
Myndir á sýningu
9. febrúar 2009
Myndir á sýningu

Nemendur í 2.-3. bekk hafa í tónmenntasmiðjunni verið að hlusta á brot úr verkinu Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky, en verkið samdi Mussorgsky innblásinn af verkum arkítektsins og listamannsins Viktor Hartmann, en þeir voru góðir vinir. Þegar Viktor Hartmann lést var það mikið áfall fyrir Mussorgsky og hann átti þátt í að sett var upp mikil...

Lesa meira
Hljómsveitaræfingar á fullu
9. febrúar 2009
Hljómsveitaræfingar á fullu

Í tónmenntasmiðjunni núna er skemmtilegur hópur stráka sem hefur dembt sér út í það verkefni að æfa „Í útvarpinu heyrði ég lag“ með HLH flokknum. Þeir spila á rafmagnsgítara, kassagítar, trommusett, bassa og hljómborð auk þess að syngja og eru vægast sagt flottir. Afraksturinn ratar svo á samsöng eins og verkefni undanfarinna hópa....

Lesa meira
Skólahreystikeppnin
9. febrúar 2009
Skólahreystikeppnin

Skólahreystiskeppnin verður haldin í Smáranum Kópavogi fimmtudaginn 12. febrúar nk. Rúta fer frá Akurskóla kl 17:30 og kostar 1000kr Akurskólabolur er innifalinn í því verði. Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmennum og hvetjum krakkana okkar áfram í úrslit!...

Lesa meira
Ég sé
5. febrúar 2009
Ég sé

Ég sé fjöllin köld í fjarska. Ég sé bláan kaldan sjóinn. Ég sé marga fuglana fagra. Ég sé snjóinn kalda. Ég sé grjótin svörtu. Ég sé stóru hvítu skýin á himninum. Ég sé bláa himininn. höf: Símon Björnsson...

Lesa meira
Lækur
5. febrúar 2009
Lækur

Lækurinn rennur niður fjöllin á milli kletta og fólkið drukknar í litlum lækjum en fiskarnir lifa í lækjarsprænum höf: Arngrímur Sævar...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla