Fréttir

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs
8. desember 2008
Röskun á skólastarfi vegna óveðurs

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf. Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni....

Lesa meira
Jólabingó hjá Kjóum, Kríum og Krummum
8. desember 2008
Jólabingó hjá Kjóum, Kríum og Krummum

Jólabingó hjá Kjóum, Kríum og Krummum Miðvikudaginn 10. desember kl. 17.00-19.00 Nú ætlum við að hafa gaman og spila jólabingó á sal skólans næsta miðvikudag frá kl. 17-19. Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur. Bingóspjaldið kostar 100 kr. og getur hver nemandi keypt 2 spjöld. Vonandi sjá ALLIR foreldrar sér fært um að mæta, því við ...

Lesa meira
Nemendur í 2. og 3. bekkjum skreyta jólatré
4. desember 2008
Nemendur í 2. og 3. bekkjum skreyta jólatré

Nemendur í Kópum, Kiðlingum og Kálfum tóku þátt í að skreyta jólatré á Hafnargötunni. Skrautið var unnið úr endurunnu gleri en það var Karólína myndmenntarkennari sem aðstoðaði umsjónarkennara og nemendur við gerð þess. Sjá myndir í myndasafni...

Lesa meira
Ég og þú, þú og ég, við tvö saman
4. desember 2008
Ég og þú, þú og ég, við tvö saman

Ég og þú, þú og ég við tvö saman námskeið foreldra og barna í 1. – 3. bekkjum lauk nú í vikunni. Við þökkum leiðbeinendum á námskeiðinu kærlega fyrir framlag þeirra. Í ár var ákveðið að bjóða upp á þrjár stöðvar þ.e. smákökubakstur, myndarammagerð úr pappamassa, dans og kortagerð. Hver hópur dvaldi eina kvöldstund á hverri stöð....

Lesa meira
Imagine flutt á sal - myndband
2. desember 2008
Imagine flutt á sal - myndband

Nemendur í 6.-7. bekk æfðu í tónmenntasmiðju lagið Imagine sem þau svo fluttu við góðar undirtektir á sal skólans....

Lesa meira
Laufabrauðsgerð
1. desember 2008
Laufabrauðsgerð

Laufabrauðsgerðin mun fara fram í Akurskóla fimmtudaginn 4. desember kl. 17.00 – 19.00 Poki með 6 laufabrauðum kostar 500 kr. (selt á staðnum) Nauðsynlegt er að koma með laufabrauðsjárn eða odd-hvassan hníf ásamt skurðarbretti og svuntu. Ætlast er til að foreldrar komi með börnum sínum. 7. bekkur mun bjóða veitingar til sölu. Ágóðinn rennur í ...

Lesa meira
Fréttir úr starfinu í nóvember.
28. nóvember 2008
Fréttir úr starfinu í nóvember.

Grímugerð og grímuball var eitt af því sem var í boði á óvæntum föstudegi í nóvember. Eftir kaffi var börnunum boðið að föndra grímur sem þau síðan notuðu á grímuballi í salnum okkar. Eins og fram kemur á þessum myndum vantaði ekki hugmyndaflugið hjá þeim og má segja að margar hverjar grímurnar hafi verið hrein listaverk. Börnin mættu síðan inn í ...

Lesa meira
Flóamarkaður Foreldrafélags Akurskóla
26. nóvember 2008
Flóamarkaður Foreldrafélags Akurskóla

Nú er tækifærið að taka til í skápunum. Við auglýsum eftir fötum og skóm til endurnotkunar og styrktar góðu málefni. Foreldrafélagið mun halda flóamarkað í Akurskóla, helgina 29. og 30. nóvember kl. 11.00 - 16.00. Allt verður selt á gjafverði. Ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda. Foreldrar geta komið með föt og skó á skrifstofu skólans (eða se...

Lesa meira
Ljóð frá nemendum
25. nóvember 2008
Ljóð frá nemendum

Hér er lítið ljóð sem nokkrir nemendur unnu í 6. og 7. bekk. Þeir vilja koma fram undir dulnefni og hafa kosið að kalla sig Shanabeth!...

Lesa meira
Kynningar á WIKI verkefni
25. nóvember 2008
Kynningar á WIKI verkefni

Nemendur hafa verið að vinna svokölluð WIKI verkefni undanfarið en það fellst í því að skrifa fræðilega grein út frá heimildum á veraldarvefinn. Verkefnið er samþættingarverkefni þar sem unnið er með nokkrar námsgreinar á sama tíma. Í þessu tilfelli er það landafræðin ásamt upplýsingatækni og íslensku (ritun og framsögn)....

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla