Fréttir

Starfsdagur
24. september 2008
Starfsdagur

Næstkomandi föstudag, þann 26. september er starfsdagur kennara. Enginn kennsla verður í skólanum. Frístundarskólinn Akurskjól verður starfræktur frá klukkan 08:10 - 17:00 fyrir þá nemendur sem hafa sótt um það....

Lesa meira
Gróðursetning
24. september 2008
Gróðursetning

Föstudaginn 19. september gróðursettu vaskir nemendur í 6.-7. bekkjum plöntur á lóð skólans með aðstoð Björns Guðbrands og félaga hans frá samtökunum Fólk í landnámi Ingólfs. Nemendur létu veðrið ekkert á sig fá og vönduðu vel til verksins og ætla að hlúa vel að plöntunum á komandi árum. Hægt er að skoða myndir frá gróðursetningunni á myndasíðu....

Lesa meira
Göngum í skólann
19. september 2008
Göngum í skólann

Nú stendur yfir verkefnið „Göngum í skólann“ en markmið verkefnisins eru meðal annars hvatning til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar....

Lesa meira
Gönguklúbbur Akurskóla
18. september 2008
Gönguklúbbur Akurskóla

Gönguklúbbur Akurskóla hvetur foreldra til að mæta með börn sín í Þórkötlustaðarétt laugardaginn 20. september. Það er mikil upplifun að fylgjast með rekstri safnsins inn í bæinn og þegar fjárbændur draga fé í dilka. Við hittumst við Akurskóla og förum þaðan kl.13:30 stundvíslega....

Lesa meira
Gönguklúbbur Akurskóla
12. september 2008
Gönguklúbbur Akurskóla

Stofnun gönguklúbbs foreldra, nemenda og kennara Akurskóla fór fram á sal skólans þann 10.september. Þegar er komin dagskrá fyrir haustið en fyrsta gönguferðin verður sunnudaginn 14. september. Við hittumst fyrir utan Akurskóla og ökum að Höskuldarvöllum rétt við Keili. Þaðan ætlum við að ganga Lambafellsklofið sem kemur manni skemmtilega á óvart....

Lesa meira
Fræðslumyndband um manninn
11. september 2008
Fræðslumyndband um manninn

Miðvikudaginn 27. ágúst horfðu unglingar 8.-9. bekkjar á fræðslumyndband um manninn og hvaða áhrif hann hefur á umhverfi sitt. Það var margt alveg ótrúlegt sem kom fram í myndinni, s.s. að menn nýta umbúðir afar illa, Vesturlandabúi drekkur tæplega 8000 lítra af mjólk, meðalmaður eignast 8 bíla, maður borðar að meðaltali fjórar kýr, fimmtán svín, t...

Lesa meira
Við ætlum að stofna útivistarklúbb í Akurskóla!
10. september 2008
Við ætlum að stofna útivistarklúbb í Akurskóla!

Á síðasta skólaári var farið í nokkrar gönguferðir að hausti og einnig að vori. Nú höfum við ákveðið að stofna útivistarklúbb þar sem getum í sameiningu ákveðið gönguleiðir og aðrar uppákomur tengdar útivist. Við bjóðum nemendur, foreldra og kennara velkomna miðvikudaginn 10. sept klukkann 20:00 á sal skólans. Vonumst til að sjá sem flesta! K...

Lesa meira
Setning Ljósanætur
3. september 2008
Setning Ljósanætur

Kæru foreldrar/forráðamenn. Setning Ljósanætur fer fram við Myllubakkaskóla fimmtudaginn 4. september. Allir grunnskólar í Reykjanesbæ taka þátt og hefst setningin kl. 11. Við í Akurskóla förum í rútu frá skólanum kl 9:45 að Reykjaneshöll og þaðan í skrúðgöngu að Myllubakkaskóla. Við hvetjum nemendur til að koma í skólabúningnum þenn...

Lesa meira
Samtalsdagur
2. september 2008
Samtalsdagur

Miðvikudagurinn 3. september er Samtalsdagur í Akurskóla en þá mæta foreldrar ásamt barni sínu í viðtal hjá umsjónarkennara sínum. Í viðtalinu verður farið yfir starfið í viðkomandi bekkjardeild og annað sem snertir skólastarf í Akurskóla á komandi vetri. Sérgreinakennarar eru einnig til viðtals þennan dag....

Lesa meira
Fyrsta skólavikan á enda
29. ágúst 2008
Fyrsta skólavikan á enda

Það er gaman að byrja í skólanum! Nú fer fyrstu skólaviku skólaársins 2008-2009 senn að ljúka. Skjólabyrjun hjá nemendum í Hvolpum, Kettlingum og Húnum, sem eru yngstu nemendur skólans, hefur gengið vonum framar. Aðrir nemendur hafa einnig tekið skólabyrjun vel og viljum við minna eldri nemendur skólans á að taka vel á móti nýjum nemendum sem eru...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla