Fréttir
Karen Dögg valin í landsliðshóp
Karen Dögg, okkar frábæri körfuboltaleikmaður í 10.bekk hefur verið valin í 12 manna landsliðshóp Íslands í körfubolta. Landsliðið er skipað leikmönnum 16 ára og yngri og hópurinn mun keppa á Norðurlandamóti sem haldið verður 8.-12.maí næstikomandi í Solna í Svíþjóð. Karen Dögg hefur æft körfubolta með Njarðvík í 8 ár og er mjög efnilegur leikmaður...
Lesa meiraStarfsdagur
Mánudaginn 4. mars er starfsdagur kennara. Engin kennsla verður í skólanum þennan dag. Frístundarskólinn Akurskjól verður einnig lokaður....
Lesa meiraFulltrúar Akurskóla í Stóru upplestrarkeppninni valdir
Fimmtudaginn 7. mars kl. 16.30 fer fram lokahátíð Stóra-upplestrakeppnin í Duus-húsum. Fulltrúar Akurskóla voru valdir í dag í keppni á sal skólans. Þau Jón Páll Magnússon og Karen Mist Arngeirsdóttir voru valin ásamt því að Birta Rós Hreiðarsdóttir verður varamaður. Keppnin var ótrúlega jöfn og nemendur höfðu greinilega æft vel upplestur og vandað...
Lesa meira7. bekkur fór á Reyki í Hrútafirði
Dagana 11. - 15. febrúar fóru 28 krakkar úr Akurskóla á Reyki í Hrútafirði. Þetta var mjög skemmtileg og viðburðarrík vika þar sem nemendur sóttu fjölbreyttar kennslustundir sem voru mjög ólíkar því sem þeir eiga að venjast. Náttúran skipar mjög mikinn sess í kennslunni og vorum við mjög heppin með veðrið, heiðskírt og logn alla dagana og stjörn...
Lesa meiraBekkjarkeppni í upplestri í 7. bekk
Föstudaginn 22. febrúar fór fram bekkjarkeppni í 7. bekk í upplestri. Nemendur hafa allt þetta skólaár verið að æfa sig í fallegum upplestri og nú voru valdir 6 nemendur til að lesa á sal í næstu viku. Af þessum 6 verða svo 2 valdir til að vera fulltrúar Akurskóla í lokahátíðinni sem fram fer 7. mars. Þeir sem lesa á sal eru: Alexandra Ósk Gu...
Lesa meiraViðurkenningar í Víkingaheimum
Þann 19. desember s.l. veittu fræðslustjóri og bæjarstjóri nemendum í 4., 7. og 10. bekk viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í samræmdum könnunarprófum. Tíu nemendur úr Akurskóla fengur viðurkenningu en þau eru: 7. bekkur Daniel Alexanderssson Eyþór Atli Aðalsteinsson Jón Páll ...
Lesa meiraKarítas Lára
Sunnudaginn 29.janúar var sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna með tónleika í Eldborgarsal Hörpu. Um hundrað ungir hljóðfæraleikarar frá nokkrum tónlistarskólum fengu að spreyta sig með sveitinni og lögðu þeir hart að sér við æfingar ásamt tveimur kórum. Við í Akurskóla áttum fulltrúa á þessum stóra viðburði en Karítas Lára nemandi í 10.bekk fékk a...
Lesa meiraLogi Geirsson kemur í Akurskóla
Mánudaginn 25. febrúar kl.17:30-18:30 mun handboltakappinn Logi Geirsson flytja fyrirlestur á vegum FFA á sal Akurskóla. Fyrirlesturinn fjallar m.a. um mikilvægi sjálfstraust og jákvæðrar hugsunar. ALLIR NEMENDUR OG FORELDRAR ÞEIRRA VELKOMNIR. Vonumst til að sjá sem flesta. Bestu kveðjur Stjórn FFA (Foreldrafélags Akurskóla) ...
Lesa meiraFyrirlestur um ofbeldi gegn börnum
Miðvikudaginn 20.febrúar ætlar FFGÍR (Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ) í samstarfi við foreldrafélög leikskólanna í Reykjanesbæ að bjóða upp á fyrirlestur um ofbeldi gegn börnum. Fyrirlesturinn verður haldin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja kl. 20.00 - 21.00. Fyrirlesturinn er fyrir foreldra og aðra sem bera ábyrgð á börnum. Sigríð...
Lesa meiraÖskudagurinn
Þá er öskudagurinn á enda. Nemendur byrjuðu daginn hjá umsjónarkennara og svo var marserað í íþróttahúsinu og þar haldið áfram með íþróttafjör. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og ýmsar stöðvar voru í gangi, t.d öskupokagerð, grímugerð, spilastöð, kubbastöð og andlitsmálun. Dagurinn heppnaðist mjög vel og fóru nemendur ánægðir heim úr skólanum. H...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)

.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
-(medium).jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)


.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)


