Fréttir
Ný heimasíða
Föstudaginn 1. febrúar opnuðum við nýja heimasíðu Akurskóla. Við tókum í notkun nýtt kerfi CMS4 frá Dacoda og við vonum að foreldrar eigi eftir að nýta sér heimasíðuna mikið. Þar er að finna allar helstu upplýsingar um skólastarfið, myndir og fréttir úr skólastarfinu og áhugavert efni....
Lesa meiraHeimsókn í Mjólkursamsölu Reykjavíkur
Mánudaginn 28. janúar var nemendum 3. bekkjar boðið í heimsókn í Mjólkusamsöluna til að fræðast um hvaðan mjólkin kemur, feril hennar í gengum verksmiðjuna og upplýsingar um það sem hægt er að búa til úr þessari frábæru afurð sem við erum að nota meira og minna alla daga. Það var tekið mjög vel á móti nemendum. Hóparnir fengu sinn leiðsögumann til...
Lesa meira5. bekkur les fyrir leikskólakrakka
Í dag fóru nemendur í 5. bekk á leikskólann Holt og lásu fyrir elstu börnin þar. Þeir lásu upp úr bókinni Iðnir krakkar eftir Sigrúnu Eldjárn. Nemendur fór heim með bókina og æfðu sig áður en þeir lásu fyrir börnin. Þetta er liður í æfingu fyrir Litlu upplestrarkeppnina sem haldin er ár hvert í 4. og 5. bekk. Þetta heppnaðist mjög vel og stóðu þau ...
Lesa meiraÞorraþema
1. bekkingar og skólahópar af Akri og Holti héldu bóndadaginn hátíðlegan í dag í lok þorra-þemadaga. Þau hittust á Akri og nutu afrakstur þemadaganna þ.e. rúgbrauðs og sviðasultu sem krakkarnir höfðu gert á þorra-matarstöðinni. Eins fengu þau að bragða á hangkjöti, harðfisk og hákarli. Þau sungu líka m.a. Þorraþræl. Sjá myndir í myndasafni...
Lesa meiraEinar Kárason rithöfundur í heimsókn
Rithöfundurinn Einar Kárason kom í heimsókn í morgun og las fyrir nemendur úr 8. - 9. bekk úr bókum sínum. Það er gaman að hlusta á Einar en hann náði einstaklega vel til krakkanna sem hlustuðu af mikilli athygli....
Lesa meiraHvað ef - skemmtifræðsla
Mánudaginn 14. janúar fóru 8. og 9. bekkur á leikritið Hvað ef sem er í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Hvað ef - skemmtifræðsla er leiksýning sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á mjög nýstárlegan og skemmtilegan hátt farið yfir kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, eineltis, sjálfsmorða og fleira. Markmiðið er ...
Lesa meiraNámsmaraþon hjá 7. bekk
Föstudaginn 18. janúar héldu 7. bekkingar í Akurskóla námsmaraþon sem fjáröflun fyrir Reykjaferð þeirra í febrúar. Söfnunin gekk mjög vel enda var tekið vel á móti þeim í hverfinu. Maraþonið var frá 8:10 um morgun til miðnættis og var mjög fjölbreytt dagskrá sem var skipulögð af kennurum þeirra í samstarfi við foreldra. Mikið var lagt upp úr hópefl...
Lesa meiraNámsmatsdagur
Næstkomandi fimmtudag, þann 17. janúar er námsmatsdagur. Þá fara fram foreldraviðtöl. Engin hefðbundin kennsla verður því í skólanum. Frístundarskólinn Akurskjól verður opinn frá 08:10 – 16:00 fyrir þau börn sem hafa sótt um það....
Lesa meiraAð læra að lesa
Að læra að lesa - lestrarþjálfunarnámskeið fyrir foreldra nemenda í 1. bekk Mánudaginn 7., þriðjudaginn 8. og miðvikudaginn 9. janúar er foreldranámskeiðið „Að læra að lesa - lestrarþjálfunarnámskeið fyrir foreldra“ frá klukkan 17:00-18:00 í Akurskóla. Guðbjörg Þórisdóttir lestrarfræðingur og Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur leiða námskeið...
Lesa meiraJólakveðja
Starfsmenn Akurskóla óska nemendum og foreldrum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Skólastarf hefst aftur föstudaginn 4. janúar 2013 samkvæmt stundaskrá....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)









