Fréttir

Skólasetning 24. ágúst á sal Akurskóla
10. ágúst 2009
Skólasetning 24. ágúst á sal Akurskóla

Skólasetning skólaársins 2009-2010 verður mánudaginn 24. ágúst 2009 eins og hér segir: Kl. 9.00 mætir 2.-3. bekkur Kl. 10.00 mætir 4.-7. bekkur Kl. 11.00 mætir 8. -10. bekkur Kl. 12.00 mætir 1. bekkur Starfsmenn mæta kl. 9.00 mánudaginn 17. ágúst. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á skó...

Lesa meira
Hvatningarverðlaun Fræðsluráðs
12. júní 2009
Hvatningarverðlaun Fræðsluráðs

Nokkrir kennarar við Akurskóla hlutu tilnefningu til hvatningarverðlauna Fræðsluráðs Reykjanesbæjar. Tilnefningin er fyrir störf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Þau verkefni sem voru tilnefnd til verðlauna eru: Byrjendalæsi, Olweus áætlun, Akurskjól, Flott án fíknar, bekkjarstjórnun og foreldrastarf....

Lesa meira
Skólaslit 2008-2009
10. júní 2009
Skólaslit 2008-2009

Akurskóla var slitið í fjórða sinn síðastliðinn þriðjudag. Við skólaslitin fóru stjórnendur yfir farinn veg og kynntu nýbreytni- og þróunarverkefni næsta vetrar en skólinn hlaut veglega styrki frá Manngildissjóði Reykjanesbæjar og Endurmenntunarsjóði grunnskóla til þróunar útináms og stærðfræðikennslu....

Lesa meira
Skólaslit
4. júní 2009
Skólaslit

Skólaslit verða þriðjudaginn 9. júní sem hér segir: 1. bekkur kl. 9 2.-3. bekkur kl. 10 4.-5. bekkur kl. 11 6.-7. bekkur kl. 12 8.-9. bekkur kl.13 Nemendur fá afhent námsmatsblöðin sín....

Lesa meira
Keilir
2. júní 2009
Keilir

Það var vaskur hópur foreldra og nemenda sem gengu á Keili síðastliðinn laugadag. Þó skýjað hafi verið í byrjun ferðar þá var sól þegar á toppinn var komið eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Jarðhræringar gerðu okkur heldur ekki mein og allir komust heilir á höldnu bæði upp og niður aftur. Þessi ganga var lokahnykkur á ,,Akurskóli á iði“....

Lesa meira
Vorferð 8-9 bekkur
29. maí 2009
Vorferð 8-9 bekkur

Þann 28. maí fórum við á unglingastigi Akurskóla í vorferð í fimleikahúsið Björkina. Við vorum mætt á svæðið um níuleytið, þar sem umgengnisreglum var lýst í stuttu máli og svo var okkur hleypt inn í salina. Það eru þrír salir, einn mjög stór, einn miðlungs og einn pínulítill. Í stóra salnum voru tveir hópar, einn í klettaklifri og annar á trampól...

Lesa meira
Vegna Alviðru
27. maí 2009
Vegna Alviðru

Takk fyrir frábærar undirtektir. Nú eru allir foreldrar búnir að svara og starfsfólk Nóa Síríus í óða önn að pakka namminu í poka svo krakkarnir geti farið að selja. Við munum dreifa 5 pokum á hvert barn í lok skólatíma á morgun, fimmtudag. Hver poki selst á 1.500 kr. og krakkarnir verða að skila peningunum á þriðjudaginn í næstu viku (þ.e.a.s. ...

Lesa meira
Sumarlestur
27. maí 2009
Sumarlestur

Lestur er grunnur að allri færni. Þess vegna býður Bókasafns Reykjanesbæjar börnum á grunnskólaaldri upp á sumarlestur yfir sumarmánuðina. Sumarlesturinn hefst 1. júní og lýkur 31. ágúst. (1. júní er frídagur í ár svo safnið verður lokað þá). Öll grunnskólabörn fá við skólaslit bókaskrár með einkunnarblöðum sínum....

Lesa meira
Gönguferð á Keili
27. maí 2009
Gönguferð á Keili

Gönguhópur foreldra og nemenda, sem hefur verið að ganga saman síðustu þrjá laugardaga, getur ekki hætt. Það er búið að vera svo gaman og höfum við verið mjög heppin með veður. Við ætlum að ganga á Keili laugardaginn 30. maí. Við leggjum af stað frá Akurskóla kl. 10....

Lesa meira
Skólakynning
22. maí 2009
Skólakynning

Við bjóðum foreldrum/forráðamönnum barna sem hafa skráð börn sín í 1. bekk í Akurskóla í haust á skólakynningu í dag kl 14:30 Deildarstjórinn mun kynna stefnu skólans, skólastarfið og umsjónarkennara. Umsjónarmaður frístundarskólans Akurskjóls kynnir vetrastarfið þar. Kær kveðja stjórnendur Akurskóla og kennarar 1. bekkja skólaárið 2009-2010...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla