Fréttir

Óvissuferð á Grænudyngju
20. maí 2009
Óvissuferð á Grænudyngju

Nú er komið að þriðju göngu "Akurskóli á Iði, útívist og hreyfing" Í siðustu viku fórum við í létta göngu í Sandvík á Reykjanesi. Laugardaginn 23. maí ætlum við að reyna aðeins meira á okkur og ganga upp á Grænudyngju sem er 401 metri að hæð. Eins og í fyrstu göngu okkar í vor þurfum við að aka að Keili. Þar förum við uppá Trölladyngju, sem er hv...

Lesa meira
Vísindakeppnin ,,Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu" fór fram í Akurskóla 14. maí.
15. maí 2009
Vísindakeppnin ,,Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu" fór fram í Akurskóla 14. maí.

Í ár áttu nemendur að hanna bát sem þurfti að uppfylla ákveðin skilyrði. Veitt voru fern verðlaun, en það var liðið Kúlíó úr Akurskóla sem fékk verðlaun fyrir frumlegasta bátinn, Tropic Thunder úr Stóru-Vogaskóla fékk verðlaun fyrir hönnun og virkni báts og The Dinos úr Heiðarskóla fékk ferðlaun fyrir besta tíma bátsins en auk þess fékk liðið verðl...

Lesa meira
Kiwanisklúbburinn Keilir og Eimskip gefa 1. bekkingum hjálma
15. maí 2009
Kiwanisklúbburinn Keilir og Eimskip gefa 1. bekkingum hjálma

Í dag hélt fríður hópur 1. bekkinga ásamt umsjónarkennurum og stjórnendum í íþróttahúsið í Njarðvík en árlega gefa Kiwanisklúbbarnir, á landinu nemendum 1. bekkja, hjálma. Eimskip styrkti verkefnið í ár. Það var því glaður hópur sem hélt heim á leið, með nýja hjálma í farteskinu. Markmiðið með þessari gjöf er að kenna börnum mikilvægi þess að nota ...

Lesa meira
Keppnin virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu
13. maí 2009
Keppnin virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu

Keppnin virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu verður haldin í Akurskóla fimmtudaginn 14. maí kl. 13. Í ár taka 85 nemendur úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar ásamt nemendur Stóru Vogaskóla þátt í keppninni. Í ár eiga keppendur að hanna bát sem fer 9 metra vegalengd yfir sundlaugina í Akurskóla. Auk þess verður keppt í reiptogi og ýmsum eðl...

Lesa meira
Diskótek Reykjanesbæjar haldið í Akurskóla
12. maí 2009
Diskótek Reykjanesbæjar haldið í Akurskóla

Sameiginlegt diskótek allra grunnskóla Reykjanesbæjar var haldið í Akurskóla miðvikudaginn 6. maí og fimmtudaginn 7. maí fyrir nemendur úr 5. 6. og 7. bekkjum. Mikil stemminga var á ballinu, en þetta er í fyrsta skipti sem Akurskóli heldur sameiginlegt diskótek fyrir nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar....

Lesa meira
Heimsókn á listahátíð barna í Duushúsum
12. maí 2009
Heimsókn á listahátíð barna í Duushúsum

Börnin í Akurskjóli skelltu sér á Listahátíð barna sem haldin var í Duushúsum. Á sýningunni fengu börnin tækifæri til að búa til sín eigin listaverk úr leir, sem þau síðan skildu eftir öðrum gestum til ánægju. Listahátíðin í ár ber yfirskriftina VINÁTTA og gafst því jákvæður vettvangur til að ræða vinamálin á leiðinni heim í strætó....

Lesa meira
Ísferð Akurskjóls
12. maí 2009
Ísferð Akurskjóls

Krakkarnir í frístundaskólanum Akurskjól hafa verið að vinna með kurteisi í starfinu undanfarin mánuð. Umbunakerfi var sett af stað og fengu krakkarnir stimpil í lok dags ef þau voru búin að vera kurteis. Þegar búið var að fylla spjaldið af stimplum fengu þau ís í verðlaun, en það var hann Magnúsi í Njarðvíkursjoppu sem bauð krökkunum upp á það....

Lesa meira
"Undir berum himni" lokið
8. maí 2009
"Undir berum himni" lokið

Nú er þemavikunni „Undir berum himni“ lokið. Mikið er búið að vera gerast hjá krökkunum og hafa þau verið mikið úti. M.a hefur verið farið í göngutúra, útileiki, grillað, málað og margt fleira. Allt heppnaðist vel og endaði þemavikan á grilluðum pylsum í boði Skólamatar og var afrakstur vikunnar til sýnis í dag jafnt innan sem utan skólans. 1.-3...

Lesa meira
Kynning á vali
8. maí 2009
Kynning á vali

Mánudaginn 11. maí verður kynning á valgreinum fyrir 9. og 10. bekki skólaárið 2009-2010. Nemendur fá valbækling í hendur föstudaginn 8. maí ásamt valblaði en einnig má nálgast þessi gögn á heimasíðu skólans. Hanna María Kristjánsdóttir kennslustjóri Fjölbrautaskóla Suðurnesja mun kynna þann hluta sem snýr að valgreinum í FS. Kynningin fer fram á ...

Lesa meira
Lok þemaviku “Undir berum himni”
7. maí 2009
Lok þemaviku “Undir berum himni”

Þemavikunni lýkur á morgun, föstudaginn 8. maí. Skólamatur býður öllum nemendum Akurskóla upp á grillaðar pylsur í hádeginu kl. 11:30 sem borðaðar verða utandyra ef veður leyfir. Foreldrar og aðstandendur nemenda Akurskóla eru hvattir til að koma kl. 12:30, skoða og upplifa afrakstur vikunnar með okkur. K...

Lesa meira
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla