Fréttir
Við þökkum Foreldrafélaginu kærlega fyrir sumargjöfina
Foreldrafélagið færði nemendum skólans að gjöf körfubolta, brennibolta og húllahringi. Þetta er svo sannarlega gjöf sem gleður börnin....
Lesa meiraFólkið í háhýsinu.
Nemendur úr 8. – 10. bekk Akurskóla sem hafa verið í leiklistarvali í vetur verða með tvær leiksýningar í næstu viku. Nemendurnir hafa æft upp þrjú örleikrit og einþáttung. Þau kalla sýninguna „Fólkið í háhýsinu“. Leikstjóri er Sólveig Rögnvaldsdóttir. Sýningarnar verða í skólanum þriðjudaginn 24. apríl og fimmtudaginn 26. apríl og hefjast kl...
Lesa meiraÚt í góða veðrið
Þegar veðrið er svona dásamlegt storma Kálfar og Kópar út til að skoða lífríkið sem er hér rétt við skólann okkar. Fyrsta dýrið sem við hittum á leið okkar var lóa og við skriðum eftir grasflötinni til að reyna að skoða hana vel. Við vorum nokkuð viss um að hún væri að athuga með hreiðurstæði. Svo var haldið áfram niður að tjörnunum og þar voru smá...
Lesa meiraGleðilegt sumar
Starfsmenn Akurskóla færa nemendum og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðilegt sumar. Á morgun er Sumardagurinn fyrsti og þá er enginn kennsla....
Lesa meiraBenni Kalli heimsækir 10. bekk
Í dag fengu nemendur í 10. bekk heimsókn frá Berent Karli Hafsteinssyni. Hann hélt tilþrifamikinn fyrirlestur um hættur í umferðinni og þá einkum í tengslum við bifhjól en Benni Kalli lenti í bifhjólaslysi um tvítugt. Benni Kalli var með ódrepandi vélhjóladellu sem unglingur. Ferill hans sem vélhjólaknapa varð þó öðruvísi en hann áformaði en hann ...
Lesa meiraFyrir umhverfið og okkur
Í gær, mánudaginn 16. apríl kom Jóhann Karl Sigurðsson deildarstjóri hjá Hringrás færandi hendi með fræðsluefni fyrir skólann. Það var dvd diskurinn „Fyrir umhverfið og okkur“. Á diskinum er myndskeið um skil á notuðum rafhlöðum til endurvinnslu. Einnig færði hann okkur ílát til að safna notuðum rafhlöðum í. Annars vegar er um að ræða pappaöskjur f...
Lesa meiraVettvangsferð
Nemendur í Kálfa- og Kópahópnum eru að byrja á verkefni sem heitir Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera og hófst vinnan á ferð í Narfakotsseylu. Meðan á göngunni stóð höfðu nemendur auga með dýrum sem þau gætu hugsanlega séð en síðan héldu þau áfram að skoða umhverfið í Narfakotsseylu og hvaða dýr væru þar. Krakkarnir sáu þó nokkuð af dýrum, skráðu þau...
Lesa meiraPáskaleyfi
Páskaleyfi hefst mánudaginn 2. apríl og skólinn byrjar aftur samkvæmt stundarskrá þriðjudaginn 10.apríl. Starfsfólk Akurskóla óskar nemendum og foreldrum þeirra gleðilegra páska....
Lesa meiraPáskabingó FFA 2012
Í dag mánudaginn 26. mars verður hið árlega páskabingó Foreldrafélags Akurskóla á sal skólans. 1. - 3. bekkur kl. 17:30-18:30 4. -10. bekkur kl. 19:00-20:00 Bingóspjaldið kostar 150 kr. Glæsileg páskaegg í verðlaun. Mætum öll, höfum það skemmtilegt og styðjum við starf foreldrafélagsins með þátttöku. Með kveðju Stjórn FF...
Lesa meiraUndirskriftarlisti vegna lélegra strætóferða
Nemendaráð Akurskóla skrifaði bréf til Árna Sigfússonar og bæjarráðs Reykjanesbæjar þar sem fram kom óánægja þeirra vegna lélegra strætóferða í Reykjanesbæ. Árni mætti á sal skólans og tók við bréfinu úr hendi formanns nemendaráðsins ásamt undirskriftarlista sem allt unglingastigið hafði undirritað. Árni þakkaði unglingunum fyrir þetta flotta framt...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.












