Fréttir
Starfsdagur 19. mai
Þriðjudaginn 19. mai er starfsdagur í Akurskóla. Nemendur eiga frí þennan dag. Frístundaheimilið, Akurskjól, er lokað þennan dag. On Tuesday, Mai 19th, there will be a staff day at Akurskóli. Students have the day off. The after-school program, Akurskjól, will be closed that day....
Lesa meiraFreyjur afhentu Akurskóla snjallskjá
Miðvikudaginn 13. maí afhentu Freyjur, Lionsklúbbur kvenna í Reykjanesbæ, Akurskóla formlega nýjan snjallskjá sem mun nýtast í kennslu og starfi skólans. Við í Akurskóla viljum færa Freyjum okkar bestu þakkir fyrir þennan mikilvæga stuðning. Freyjur hafa um árabil styrkt fjölmörg verkefni í samfélaginu fyrir háar fjárhæðir og fjármagna starf sitt a...
Lesa meiraLitla upplestrarkeppnin
Litla upplestrarkeppnin eða upplestrarhátíðin var haldin í 4. bekk miðvikudaginn 6. maí. Litla upplestrarkeppnin er fyrir 4. bekk grunnskóla og er ætlað að bæta árangur í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Má segja að þetta sé upphitun fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin er í 7. bekk. Undanfarnar vikur hafa nemendur æft sig af kappi og...
Lesa meiraStjörnu-Sævar fræddi nemendur um almyrkva á sólu
Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, heimsótti skólann og kynnti fyrir nemendum þann einstaka atburð sem fram undan er – almyrkva á sólu sem verður sýnilegur frá Íslandi þann 12. ágúst 2026. Almyrkvi á sólu er sjaldgæft og stórfenglegt náttúrufyrirbæri og verður þetta í fyrsta sinn í margar aldir sem slíkur myrkvi sést frá Reykjan...
Lesa meiraHæfileikahátíð grunnskólanna
Dagana 30. apríl til 10. maí er barna- og menningarhátíð Reykjanesbæjar, BAUN og af því tilefni er haldin Hæfileikahátíð grunnskólanna í Hljómahöll. Öllum nemendum í 6. bekk er boðið í Hljómahöll að horfa á atriðin en einnig er þeim streymt fyrir aðra nemendur í grunnskólum bæjarins. Hver skóli sýnir eitt atriði og voru það nemendur í 6. bekk sem v...
Lesa meiraÚtskrift og skólaslit vor 2026
Skólaslit og útskrift í Akurskóla 2026 fara fram 9. og 10. júní. Þriðjudaginn 9. júní kl. 14:00 Útskrift 10. bekkjar í íþróttahúsi Akurskóla. Veitingar á sal skólans að lokinni útskrift. Miðvikudaginn 10. júní kl. 9:00 Skólaslit 1. - 9. bekkjar í íþróttahúsi Akurskóla. Að lokinni stuttri athöfn í íþróttahúsinu halda nemendur í heimastofur þar sem ...
Lesa meira1. maí - Verkalýðsdagurinn
Föstudaginn 1. maí er Verkalýðsdagurinn og þá er frí í skólanum. Kennsla fellur því niður þennan dag og frístundaskólinn er lokaður. Skólastarf hefst samkvæmt stundaskrá á ný mánudaginn 4. maí. ------------- Labor Day – School Closed on Friday, May 1 Friday, May 1, is Labor Day, and there will be no school on that day. Classes will therefore be c...
Lesa meiraAndlát - Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri
Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri f. 1.6.1963 d. 25.4.2026Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi aðstoðarskólastjóri Akurskóla er látin.Bryndís starfaði sem aðstoðarskólastjóri Akurskóla á árunum 2012–2014.Bryndís var mikil skólamanneskja sem setti sannarlega spor sín á skólastarf í Reykjanesbæ. Áður en hún kom til star...
Lesa meiraStafrænt skóladagatal fyrir foreldra 2026-2027
Akurskóli hefur nú tekið í notkun nýtt stafrænt skóladagatal sem foreldrar geta sett beint inn í sitt eigið dagatal, t.d. í Outlook eða Google Calendar. Með þessari lausn fá foreldrar yfirsýn yfir helstu viðburði skólaársins – svo sem starfsdaga, skerta nemendadaga, frí, uppbrot, skólahátíðir og skólaslit – allt á einum stað í dagatalinu sem þegar ...
Lesa meiraSumardagurinn fyrsti og starfsdagur
Fimmtudaginn 23. apríl er sumardagurinn fyrsti sem er almennur frídagur. Þann dag verður því ekkert skólastarf í Akurskóla. Föstudaginn 24. apríl er starfsdagur kennara og þá er einnig ekkert skólastarf. Frístundaskólinn Akurskóli verður lokaður þann dag. -------------------- On Thursday, April 23, Iceland celebrates the First Day of Summer, whic...
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.












